- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
255

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 255 —

kennandi, þó fæturnir hafi óvart orðið fjórir, enda
þótt það sýnist betur eiga við á slíku dýri, að þeir
hefðu staðið á stöku.

Nú býst ég við, sumir muni segja, það sé að vísu
illa farið, að efnið sé svona ljótt og heimskulegt; en
rímna-skáldinu sé ekki um það að kenna — honum
beri að kveða yfir söguna eins og hún sé, og låta
það verða liðugt, sem hann kveði; þá sé hann búinn
að ljúka af sínu ætlunarverki, og meira sé ekki
heimt-andi af neinu rímnaskáldi. Hver veit, nema þetta
sé satt, eftir þeirri hugmynd, er sumir menn gjöra
sér um rímur? En þá mega þeir hinir sömu ekki
kippa sér upp við það, þó aðrir, sem vit hafa á, geti
ekki kallað þess konar rímur skáldskap, eða þá menn
skáld, sem hnoða þeim saman. Höfundi Tistransrímna
er auðsjáanlega sök á því gefandi, að hann valdi
slíkt efni; það lýsir frábærlegu „smekkleysi" og
til-finningarleysi á því, hvað skáldlegt sé; og þetta atvik
gefur undir eins illan grun á, að hann sé ekki
gædd-ur neinum verulegum skáldskaparanda, eða þá, að
minnsta kosti, að öfl sálarinnar séu of illa vanin, og
vitið of lítið, til að kannast við þennan anda og
stjórna honum réttilega. Á hinn bóginn getur líka
góðu skáldi orðið nokkuð úr vesælu efni, ef hann fer
með það eins og skáld, og lagar það í hendi sinni,
eftir því sem bezt á við. Það er ekkert vit í því, að
rímna-skáldin eigi að vera bundin við söguna. Þau
eiga miklu fremur, þegar þörf gjörist, að breyta
henni á marga vegu, búa til viðburði sjálfir, og skapa
hið innra líf þeirra manna, er sagan nefnir, til að
koma sem beztri skipun á efnið, og geta síðan leitt
það í Ijós í fagurlegri og algjörðri mynd; ella verða
rímurnar tómar rímur, en aldrei neitt listaverk. Þetta
hefir höfundur Tistransrímna ekki borið við; hann

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0263.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free