- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
262

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 262 —

ur, að taka rímurnar og lesa i hljóði fimm erindi úr
fyrstu rimunni (36.—40.) ; það er ekki til neins að
hafa þau hátt. Slíkur óþverri og viðbjóður! Það eru
fádæmi, að nokkur maður skuli geta verið að velta
öðru eins í huga sér, og búa það til. ímyndunaraflið
hlýtur að vera allt saman gjörsamlega spillt og
saurg-að, áður en það geti farið að skapa þvílíkar ófreskjur.
Hitt og annað í ætt við þetta er að lesa í 1., 52.; 4.,
10.; 5., 45.; 5., 53.; 5., 57.; 9., 20.; 9., 36.—40. 0g
þó er Sunnanpósturinn að hæla Tistrans-rímum.
Hver veit, nema honum finnist vera töluvert bragð að
þessu, og mætti þá segja um hann og össu
„Breid-fjardar" eins og sagt er á öðrum stað í
Sunnanpóst-inum: Þar sem hún hafði setið, fundu þeir tóbak!

Þetta mun þykja nóg komið af svo góðu, og vildi
ég óska, það, sem hér er sagt, gæti orðið einhverjum
til viðvörunar, sem fengist við rímnakveðskap
eftir-leiðis. Mér ofbýður, þegar ég fer að hugsa um, að
þetta eru elleftu rímurnar, sem maðurinn hefir
kveð-ið — og lauk við þær, þegar hann stóð á þritugu (14.,
6. og 7.). Hvílík vanbrúkun á skáldskaparlistinni!
hvílíkt hirðuleysi um sjálfan sig og aðra, — að hroða
svona af kveðskapnum, og reyna ekki heldur til að
vanda sig og kveða minna. Þetta má ekki svo-búið
standa. Leirskáldunum á ekki að vera vært; og þeim
mun varla verða það úr þessu, nema þau fari að taka
sér fram og hætti með öllu eða yrki betur. Höfundur
þessara orða skal að minnsta kosti heita á hvern, sem
fyrstur verður til að låta prenta nýjar rímur, svona
illa kveðnar, að taka þær, ef hann lifir, og hlífa þeim
ekki, heldur leitast við að sýna almenningi
einskis-virði þeirra, og hefna svo landsins og þjóðarinnar
fyrir alla þá skömm, sem hún verður fyrir af slikum
mönnum.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0270.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free