Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
_ 272 —
IV.
FORMÁLI.
Ég þarf ekki að lofa þá vísindagrein, sem þessi
bók er ætluð til að fá alþýðu vorri nokkurt
skyn-bragð á, því næturnar gera bað hver eftir aðra, og
kvöld og morgunn, og dagurinn „frá uppgöngu og til
niðurgöngu". En ég verð að lofa bókina, eins og
höf-undur hennar hefir skilið við hana, þvi ég hefi öngva
aðra séð um það efni, er segi svo mörg sannindi í
jafnstuttu máli, og þó skiljanlega; sjálfsagt er, að
hún hefir á ]>ann hátt ekki getað orðið eins
skemmti-leg og hugkvæm almenningi, eins og ef hefði mátt
lengja hana meir og fara fleirum orðum um sitt hvað
eina. Útgefendurna verð ég einnig að lofa, fyrir það
þeir hafa heiðarlega ráðizt í að leggja á tvær hættur í
góðum tilgangi. Og sjálfan mig verð ég að afbata, hvi
ég veit fullvel, að mér hefir víða hvar farizt verk
mitt úr hendi ófimlegar en vera bæri; tel ég mér það
helzt til afsökunar, að ég hefi hlotið að búa til mjög
rnörg orð, og eru þau ætíð leið í fyrstu, þangað til
eyru vor fara að venjast þeim. Ég vonast einnig
eftir, að önnur betri komi bráðum í stað sumra þeirra,
og að þessi litla f járgata, er ég nú hefi lagt, verði með
timalengdinni að breiðum og ruddum þjóðvegi.
Ég fyrir mitt leyti gleðst af að skoða himininn,
til fróðleiks og yndis og huggunar, og tek fúslega
undir með Addison:
Festingin víða, hrein og há,
og himinbjörtu skýin blá,
og logandi hvelfing, ljósum skirð,
þið lofið skaparans miklu dýrð.
Allt kvæöið. Sbr. I. b., bls. 215—16.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>