Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 273 —
TÓMAS SÆMUNDSSON.
Það er siður á landi voru, þegar merkismenn
lát-ast, að minnast við útför þeirra á hið merkasta, sem
íyrir þá hefir komið og sjálfir þeir afrekað á lífsins
leið; eru það kallaðar ævisögur. En svo er um líf
sumra manna, að það er svo auðugt og merkilegt, þ«.’.tt
ár þeirra hafi ekki verið mörg, að ofætlan er þeirn,
,sem bezt þekkja þá, að þeir geti samið slíkar
ævisögur, jafnskjótt og þeim berst fregn um
vinarmiss-inn. Höfundur þessara minningarorða um ævi séra
Tórrjasar getur þetta með sanni sagt, því hann átti
ekki fyrir sér nema einn dag til að semja þau, af því
þau áttu að verða notuð við líkræðuna og urðu að
fara langan veg. Það má því ei ætla, að þetta sé
ævi-,saga, er oss virðist hæfa slíkum manni. Það eru að
eins nokkur minningarorð til bráðabirgða í
virðing-ar- og ástar-skyni við þann mann, er mestan og
bezt-an hlut hefir átt í riti voru. Það er og óséð enn, hverju
hann hefir áorkað og mun áorka íslandi til
viðreist-ar, þótt nú sé hann undir grænni torfu. Vér vonumst
og til, að „ævisaga" hans muni einhvern tíma, seint
eða snemma, fræða um það þjóð hans, sem hann
vann allt fyrir, frá því hann komst til vits og ára.
Tómas prófastur Sæmundsson er borinn í þennan
heim á Kúhóli í Austur-Landeyjum 1807. Foreldrar
hans ivoru þau Sæmundur bóndi Ögmundsson og
Guðrún Jónsdóttir, og eru þau bæði hjón þjóðkunn
að höfðingskap og hvers konar framkvæmd og
at-^ervi, er prýða má stétt þeirra. Tómas ólst upp í
föðurhúsum þangað til hann var 15 vetra. Á því
tímabili hefir Sæmundur flutt sig að Eyvindarholti
18
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>