- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
300

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 300 —

bezt er ]>á að geyma hann i hjalli, og sé hjallur ekki
til, held ég væri ráðlegt að þekja hann i þangi og
halda honum svölum á þann hátt. Það ber oft við,
að fiskur, sem menn ætla sér að herða, verður ekki
breiddur undir eins til þerris sökum votviðra, og þá
sýnist mér bezt að salta hann tafarlaust og gjöra
heldur úr honum góðan saltfisk en lélegan harðan
fisk. Hjaltlendingar salta allan sinn fisk; þvi þeir
segja, eins og satt er, þeir geti aldrei reitt sig á, að
harður fiskur yrði [>ar góður, af þvi }>ar ganga svo
oft ]>okur og vætur.

4. Fiskurinn er ekki ætíð þveginn svo vel og
þrifalega sem skyldi. Fisk, sem á að herða, þarf ekki
að ]>vo, nema einu sinni, undir eins og búið er aðfletja
hann; en þvi nauðsynlegra er, að ]>að sé gjört vel og
vandlega. Þetta ferst nú samt stundumj fyrir, þvi ég
hefi oft séð fisk vera flattan og breiddan svo til
þerr-is óþveginn (stundum með sömu afsökuninni: að
menn ætli að borða hann sjálfir); en það er til mesta
spillis, og eins fyrir þvi. ]>ó menn hirði ekkert um,
hann skuli verða myndarlegur útlits; vessarnir, sern
í honum eru, gjöra hann bragð-illan, og hafi hann
legið nokkra stund, fyr en að honum væri gert,
kemur á hann slepja og gjörir hann óhollan til fæðis.
Sá fiskur verður allur dökkur útlits, þegar hann er
hertur, heldur sér illa, ef hann er geymdur, og er með
öllu óútgengilegur. Saltfiskinn ]>arf að þvo tvisvar,
eins og allir vita; en i fyrra sinni þarf að þvo hann
eins vandlega, og |>ann fisk, sem herða skal, svo blóð
og slepja og önnur óhreinindi gangi vel af honum, og
pækillinn verði svo hreinn og tær, sem auðið er,
þeg-ar hann er kominn i saltið; því lakar sem þessa er
gætt, þvi meir spillir [>að útliti hans og smekk. Seinni
þvotturinn ætti raunar einungis að |>urfa að vera til

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0308.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free