- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
303

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

bændunum; ]>ví það eru — eins og ég hefi sýnt —
sjómennirnir, sem fara rangt með fiskinn
upphaf-lega, og engu verður til leiðar komið i þessu efni,
nema þeir sannfærist sjálfir um, hversu áriðandi sé,
að þeir breyti aðferð sinni, og ásetji sér fastlega að
gæta alls þess, er bætt fái fiskverkunina.
Fyrirhöfn-in er ekki mikil, og mest i }>vi fólgin, að geta fengið
af sér að segja: nú vil ég l>að. Og mér virðist, sem
ekki ]>urfi langa umhugsun til slíks ásetnings, ]>egar á
það er litið, að menn ávinna sér með }>ví móti bæði
]>ann hagnað, að fiskurinn verður útgengilegri og
kemst í hærra verð, og j)á meðvitund, að menn hafi
ekki af sjálfskaparvitum kveikt og aukið veikindi, og
})á eymd, er þeim, fylgir.

Sumum mun, ef til vill, þykja )>að kynlegt, að ég
hefi einungis talað um ósiðina, og ekki jafnframt sett
reglur um alla fiskverkun, frá upphafi til enda; en
bæði er ég hræddur um, að þessi ritgjörð þyki orðin
nógu löng, og mér virðist ]>að ekki heldur með öllu
nauðsynlegt; vildi ég einungis benda til ]>eirra bresta,
sem ómissandi er, að þegar séu lagfærðir. Verkun á
saltfiski fer líka að mestu leyti fram undir umsjón
kaupmanna (úr ]>ví hann kemur í saltið), og víðast
hvar vel og reglulega; og til að færa sönnur á mál
mitt, nefni ég aftur fiskinn á þiljuskipunum,
semvan-ur er að verða góður kaupeyrir, af ]>ví fyrsta
með-ferðin á honum spillir ekki seinni verkuninni. Ég
læt mér }>ví nægja að draga hér saman þær reglur,
sem hafa ])arf til að bæta úr ]>ví, sem að hefir verið
fundið, og ef ]>eim er gaumur gefinn, má reiða sig á,
að fiskverkunin heppnast vel, ef ekkert óhapp vill
til að öðru leyti; en bregði menn út af, J>ó ekki sé
nema einni þeirra, mun það sannast, að illa fer. Ég

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0311.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free