- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
313

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 313 —

sína af honum. Vitnunum, kaupmanni Jacobæus og
hreppstjóra, Jóni Þórðarsyni, sýndist að vísu, að
Vig-fús þá talaði af ráði og væri ferðafær, en vel gat
það líka skeð, þó hann hefði verið mjög svo með
rjúk-anda ráði, þegar hann greip skjóðuna; því hnykkja
mátti honum nokkuð við, þegar farið var að drótta
að honum hvinnsku, og við það hefði af mörgum
runnið ölteitin. — Hvað maðurinn hefir verið gáður,
sést samt bezt af framburði kaupmanns Gunnersens,
sem lýsir því, að Vigfús gat fengið af sér að fara í
ryskingar við skjóðueigandann, meðan verið var að
draga upp úr henni vörurnar, — kálfræið og tóbakið.

Jafnframt þessu ástandi Vigfúsar bið eg nú, sá
hávísi réttur vilji líta á hitt, að hann aldrei fyr er
þekktur að öðru en ráðvendni, þegar eg undantek
þann brest, að hann er hneigður til brennivíns, hvað
hann einnig sjálfur hefir fundið og frómlega játað
við yfirheyrsluna. — Tilfellið með þá fundnu spesíu
ber líka órækt vitni um það, að þjófsnáttúra er ekki
til í manninum; og að svo miklu leyti sýnist mér
Vig-fúsar skilríka meðferð á fundnu fé geti komið
honum hér til afbötunar; því þó að hitt sé satt, að
upp-fylling skyldu manns ekki afsaki seinna framin
mis-verknað, sé hann annars skýlaus, finnst mér þó vel
hæfa að líta á alþekkt frómlyndi, þar sem brotsins
eðli er vafasamt, og virða þá fremur á hægra veg.

Það er mér nú ekki um að gera, að Vigfús sleppi
að öllu óhegndur; en að straffa hann sem þjóf,
sýn-ist mér samt ísjárvert; hvernig sem skjóðan er
kom-in í hendur hans, er það skeð að honum drukknum,
og það til stórra muna. Á svalli hans sýnist mér því
einkum, að honum sé sökin gefandi, og mun þá
til-fellið réttilega verða sett í flokk þeirra
pólití-yfir-sjóna, sem afplánast með smávegis fébótum. —
Hvort þetta skeði á sunnudag eður mánudag, vona

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0321.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free