- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
314

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 314 —

eg annars, að ekkert geri til straffsins skerpingar,
þar eg ekki veit til, að lögin taki þess háttar til
greina, á meðan verkið ekki nemur helgidagsbroti,
fyrir hvað Vigfúsi — eins og von var — aldrei
hefir verið stefnt.

Að svo fyrirmæltu verður þá mitt auðmjúkt
uppástand:

að Vigfús bóndi Jonsson frá Brekku gjaldi 4 m.
silfurs til fátækra í Rosmhvalaness-hrepp og svari
þar að auk málskostnað,

eða: ef sá hái Landsyfirréttur álitur hann
sak-fallinn sem þjóf, þá:

líði það minnsta straff, sem kongsbréfið af 25.
Júlí 1808 ákvarðar fyrir fyrsta sinn framinn
þjófn-að hér á landi, sem eru 10 vandarhögg.
Og legg eg svo vaxið málið í dóm.

Reykjavik, þann 20. Júní 1831,
undirgefnast

J. Hallgrímsson.

MÁLSVARNARSKJAL
til ens konunglega íslenzka Landsyfirréttar í
barn-eignamálinu: Sýslumaður Ó. Finsen, skipaður actor
réttvisinnar vegna,

gegn

Sölva Þorbergssyni og Björgu Þórðardóttur innan
Skagafjarðarsýslu.

Sú ákærða, Björg Þórðardóttir, hefir eignazt 4
börn í lausaleik, og eru 2 þau seinustu getin með
Sölva Þorbergssyni, bróður Ásmundar nokkurs, sem
hún hafði átt annað barn sitt með. Hlutaðeigandi
amtmaður bauð því að höfða mál gegn báðum þeim,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0322.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free