- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
316

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 316 —

frá 25. Júlí 1808 heimilað hér afmiðlun allra
legorðs-bóta, eins og kancellískipun frá 12. Júlí 1794 áður
hafði gert fyrir Danmörku; en plakat frá 12. Júní
1812 aftók síðan allar fébætur fyrir einföld
lausa-leiksbrot, og er þetta placat lögleitt hér á landi með
kancellíbréfi frá 24. Febrúar 1816.

Svona stendur nú á sem hér er sagt, og finnst mér
þá mætti spyrja: er nú ekki að álíta 2 til 10 rbd.
bæturnar komnar í stað hinna, sem stóri-dómur
á-kveður fyrir 4. lausaleiksbrot?, og séu þær það: eru
þær þá ekki líka afteknar hér á landi með plakatinu
frá 12. Júní 1812?, eða með öðrum orðum: hefir ekki
ofannefnt plakat aftekið straffið fyrir öll einföld
lausaleiksbrot, svo lengi sem það nemur fjársektum
einum? — Eg má nú játa, að eg ekki treystist til að
svara neinu með vissu hér uppá, en leyfi mér
ein-ungis í djúpustu undirgefni að skora í þessu efni á
hins hávísa Landsyfirréttar athygli.

Hvernig sem þessu er annars varið, virðist mér
samt, að héraðsdómarinn hafi metið fjársvik
Bjarg-ar til jústitskassans ofhátt, þá litið er á þær upplýstu
kringumstæður.

Sú ákærða, Björg, hefir 4 börn fram að færa, og
aleiga hennar er svo að segja ekkert annað en 10
sauðkindur, fyrir utan fatnað hennar og rúm. Af
skýrslu hennar, sem hlutaðeigandi stefnuvottar hafa
teiknað á dómsaktinn, þá þeir birtu Björgu
héraðs-dóminn, er samt að ræða, að hún enn þá hafi ekki
þegið sveitartillag með þeim, og er það að vísu góðra
gjalda vert. En ekki er sjáanlegt, að hún muni svo
framvegis af komast, ef skepnur hennar, sem eru
að-alstofn lifsbjargar sveitabúans, verða teknar af henni
í fjárútlát, því annað en þær hefir hún ekki til að
greiða sektina með. Hætt er því við, að ábati
jústits-kassans komi niður á hrepp Bjargar í staðinn fyrir

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0324.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free