- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
317

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 317 —

á henni sjálfri, og fer þá ekki að sköpum; enda er
það gagnstætt anda þeim, sem tignar Dana-konunga
seinni lög, hvað berlega sést af inngangi plakatsins
frá 12. Júní 1812. — Mér virðist því auðsætt, að þó
fjórðungsvistar-bæturnar enn þá standi í gildi, muni
ekki lögum traðkað, þó stúlkunni veljist hin minnsta
sekt, eður 2 rbd. silfurs.

Nú er að minnast á ákæruna gegn Björgu og Sölva
fyrir það, að börn þeirra séu getin í meinum, þar
Sölvi þessi Þorbergsson er skilgetinn bróðir
stúlkunn-ar fyrra barnsföðurs; og fer mér þá sem fyr, að mér
finnst straffsektin í þessu tilfelli nokkuð vafasöm.
Eg bið þvi, mér leyfist að drepa á það með fæstu
orð-um, sem mér virðist hér við athugunarvert.

Þó stóri-dómur eftir reglunni lex generalis
spe-cialem non tollit, nisi expressis verbis, enn þá gildi
hér á landi að svo miklu leyti, sem lagaboð fyrir
Island, seinna útgefin, ekki breyta hans atkvæðum,
mun samt af flestum viðtekið, samkvæmt seinni laga
mildari anda, að reikna ekki aðra liði til meinbuga
en þá, sem tilskipan frá 23. Mai 1800 upptelur; er
þar svo fyrirmælt, að til þess að giftast ekkju
bróð-ur síns þurfi að leita konungsleyfis, og mun þá eiga
að heita eftir Analogien af 3—16 (N. L. 18)—9, § 5,
að eins þurfi konungsleyfi til að taka þá stúlku sér
til konu, sem með bróður manns hefir áður eignazt
barn í lausaleik. — En það, sem hér gerir vafann á,
sýnist mér einkum, að hvorki tilskipan frá 14.
Des-ember 1775, sem annars virðist fullhörð, né seinni
til-skipun frá 23. Mai 1800, minnist eitt orð á straff
fyrir barneignir í þeim liðum, hvar vænta má
hjóna-bandsleyfis hjá konungi, þvi þó tilskipun frá 14.
Des-ember 1775, eins og actor tilfærir, segi, at saadanne
maa vente haardeligen at straffes, þá er aðgætandi,
að orðatiltækið er hér engan veginn heimfærandi,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0325.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free