- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / II. Sendibréf, Ritgerðir o. fl. /
394

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 394 —

gesti og ferðafólk, sem streymir þangað til að njóta
náttúru-fegurðarinnar. — 11.—12. 1. a. n., „drottningin á Englandi",
Victoria Alexandrine, f. 1819, tók við ríki 1837, d. 1901, og
hafði þá verið drottning rúm 63 ár. Hún giftist 1840 frænda
sínum, prins Albert af Sachsen-Koburg-Gotha (d. 1861), sem
hún unni ætíð mjög heitt. ■— Bls. 165, 2.—3. 1., „kong og
drottning" á Frakklandi, Louis Philip (Lúðvík Filippus) og
Marie Amélie; hann var f. 1773, varð konungur 1830, dó 1850.
— Bls. 166, 12,—13. 1., „Séra", á frönsku „S’ire". — 21. i.,
„Marmier", Xavier M. (f. 1809, d. 1892), var hér með í
i-ann-sóknarför P. Gaimards 1836 og ritaði síðan sögu Islands (1840)
og bókmenntasögu (Paris 1843); sbr. Landfrs. ísl., III., 244—
47. Hann varð bókavörður og mikill rithöfundur, •— en jarl
varð hann aldrei! — 24. 1., „Guðmund litla", Sivertsen, sem
frakkneska stjórnin kostaði til náms í Paris; hann lærði
lækn-isfræði, en dó ungur. — 25. 1., „Guizot", Fr. P. G. Guizot,
fræg-ur stjórnmálamaður og sagnfræðingur (f. 1787, d. 1874); hann
var aðalráðgjafi Lúðvíks Filippusar 1840—48. •— 29. 1., „var
að lesa" o. s. frv. Reykjavíkurdeild Bókmfél. kaus Guizot
heið-ursfélaga 17. Ág. 1837, vegna leiðangursins 1836 (fyrir 7
ár-um). — Bls. 167. Jónas hefir skrifað í gamni „Viktor Eremita"
undir þessa ferðasögu og, ef til vill, ætlazt til, að það dulnefni
yrði sett undir hana, ef hún yrði prentuð í Fjölni (VII. árg.).
Hann tók þetta eftir höfundi ritsins „Enten — Eller", sem
var aýkomið út (1843) undir þessu dulnefni og vakti :nikla
eftirtekt; höfundurinn var Søren Kirkegaard. — Gamlir
Múl-sýslingar fullyrða, að Jónas hafi haft í huga, er hann setti
saman ferðasögu drottningarinnar af Englandi, vissar,
alkunn-ar persónur þar eystra; „drottningin" er, segja þeir, Ingunn
Vigfúsdóttir (prests, Ormssonar) á Eyjólfsstöðum, kona
Sig-urðar Guðmundssonar, sýslumanns, hins rika, Péturssonar. Var
að sögn manna mjög hlýtt á milli Guttorms prests Pálssonar í
Vallanesi og Ingunnar, og segja menn, að Jónas hafi átt Við
séra Guttorm með „séra Filippusi". Með sundinu sé átt við
Grimsá, segja þeir. Guizot halda þeir kunni að vera Sigurður
Gunnarsson (eldri). — Þegar Jónas kom að Vallanesi („á
prófastsbú", sbr. vísuna á bls. 172—73 í I. b., m. aths.)
sum-arið 1842, er sagt, að Margrét, kona séra Guttorms og systir
Ingunnar, hafi ekki viljað lofa Jónasi að gista (í bænum) og
því hafi hann legið þar í tjaldi á túninu. •— Því var hann þó
víst vanastur á ferðinni. Er engin ástæða til að álíta, hvorki
af því né öðru, að Jónas hafi haft þessar persónur í huga, er
hann ritaði þessa ferðasögu. — Sjá nú um hana og allt þetta

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:12 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/2/0402.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free