- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
5

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

UM EÐLI OG UPPRUNA JARÐARINNAR.

Gömul skáld og vitringar hafa kallað jörðina
allra móður, og varla gátu þeir valið henni fegra
heiti eða verðskuldaðra; því allt, sem lifir og
hrær-ist, allt, sem grær og f ölnar og á sér aldur, leiðir hún
fram af sínu skauti, og ljær án afláts efnið í hina
óteljandi og margbreyttu líkami, sem lífsaflið
myndar og yfirgefur að nýju, á sinni huldu og
eilífu rás gegnum náttúruna; en sjálf þreytir hún
skeið sitt með ærnum hraða kringum sólina, og
fylgir á því föstum og órjúfandi lögum, sem
mann-legri skynsemi hefir auðnast að þýða, svo hægt er
að tilgreina afstöðu hennar frá sólinni og
öðr-um himintunglum, með stund og stað, á hverri
ó-kominni öld, á meðan fyrirkomulag sólkerfis vors
haggast ekki af nýjum og stórkostlegum
viðburð-um. Ekki er heldur dautt eða kyrt í innyflum
jarðarinnar, því þar geysar jafnan geigvænlegasta
og aflmesta höfuðskepnan, en það er eldurinn, sem
á stundum brýzt upp úr undirdjúpunum og
klýf-ur sundur fjöll og jökla, en bráðnað grjót og
jarð-tegundir fljóta eins og árstraumur, og eyða hverju,
sem fyrir verður. Eitthvað er líka að, þegar
jarð-skjálftarnir fara eins og hryllingur yfir hinn
ofur-stóra líkama jarðarinnar; þá hrynja húsin og
björg-in klofna, og stundum koma eyjar upp úr sjónum,
þar sem áður var hyldýpi, ellegar stór héruð hrapa
til grunna, og ekkert er eftir nema vatn, þar sem
áður voru byggðir raanna.

Allt þetta er svo mikið og íhugunarvert, að
spekingar á öllum öldum hafa leitazt við að gera
sér það skiljanlegt, og ígrundað kostgæfilega eðli

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0013.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free