Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
og uppruna jarðarinnar, er þeir útlistuðu með
mörgu móti, og komust þannig nær og nær
sann-leikanum, eftir því sem þekkingin óx af margra
alda reynslu og rannsókn á eðli hlutanna. Forfeður
vorir, sem í fæstu hafa verið annara eftirbátar,
hafa ekki heldur leitt þetta rannsóknarefni fram
hjá sér; því guðasögur þeirra bera með sér, að þeir
hafa íhugað eðli jarðar og frumöfl náttúrunnar;
þau birtust þeim í mörgum myndum, annaðhvort
sem skaðvænar verur, eyðandi guðanna
handaverk-um, eða góð og máttug goð, sem framleiddu lífið
og ljósið, en stökktu þursum og illvættum burt frá
bústöðum manna og guða. Að vísu er það ekki
allténd svo hægt, að færa hinar fornu sagnir úr
skáldahjúpnum, til að sjá, hvaða hugmynd um
skapnað og eðli hlutanna hafi hvarflað þeim fyrir
sjónum í hvert skipti, en auðséð er samt, að þeir
hafa getið mörgu furðanlega nærri. Ég vil nú ekki
fá mér til orða lýsinguna af ragnarökkri í Völuspå,
þegar jörðin eyðist og sígur í sjó, af ofurmegni
vatns og funa, en bugast þó ekki með öllu, heldur
hefur höfuð sitt á ný, og stígur endurborin upp úr
hafsdjúpinu, fegri og frjóvgari en hún áður var,
því það er svo djúpsætt og sannleikanum svo
sam-kvæmt, að varla mun geta hjá því farið, að skáldið
hafi haft grun um, að eitthvað þvílíkt hafi áður
við borið. En Ólafur hvítaskáld, eða hver hann er,
íslendingurinn, sem ritað hefir formálann framan
við Snorra-Eddu, skýrir oss frá hugmyndum
for-feðranna me?5 svo snotrum og kjarngóðum orðum,
að eg get ekki stillt mig um að hafa þau eftir, eins
og þau standa í bókinni: ,,Þat hugsuðu þeir ok
undruðust", segir hann, „hvi þat myndi gegna, er
jörðin ok dýrin ok fuglarnir höfðu saman eðli í
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>