- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
12

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 12 —

kallað sýnishorn af rannsóknum hinna fornu
vitr-inga. Af því þá vantaði reynsluna, sem smátt og
smátt hefir leitt í ljós hið rétta eðli heimsins, og
sambandið milli orsaka og afleiðinga í náttúrunni,.
gripu þeir til skáldlegra hugmynda; og oft og
tíð-um eru þær svo fagrar og samtvinnaðar við
skarp-vitrar íhuganir, að mörgum hættir til að gleyma, á
hvað veikum fæti þær eru byggðar.

Fegurstar og háleitastar eru samt hugmyndir
austurlenzka spekingsins um sköpun heimsins, sem
standa í upphafinu á fyrstu Mósesbók, og hverjum
manni eru svo alkunnar, að ég þarf ekki að geta
þeirra hér. Ég vil því einungis drepa á, að svo
af-bragðsleg dirfska og skáldlegt fjör, sem lýsir úr
hverju hans orði, virðist þó ekki að síður frásögn
hans um sköpunarverkið vera sprottin upp af
djúpsærri náttúruskoðun.

Gamla spekin dó út á miðöldunum, eins og"
alkunnugt er; því þó hún feldist í bókum, var hún
samt horfin af jörðu, meðan hún lifði ekki í
með-vitund og sannfæring þeirra, sem á jörðunni
bjuggu. En þegar ljós vísindanna aftur fór að skína
á Norðurlöndum, kom það allt í góðar þarfir, sem
gömlu vitringarnir höfðu afrekað. En nú fóru
náttúrufræðingarnir að ganga annan veg en áður,
og velja reynsluna sér til leiðtoga. Nú var ekki
framar gefinn gaumur að neinum getgátum, hvað
álitlegar sem þær voru, fyr en reynslan staðfesti þær,.
eða að minnsta kosti gjörði þær líklegar. Nú voru
frumefnin aðskilin og grandskoðuð, og eðli þeirra
rannsakað kostgæfilega. Þræðir orsaka og
afleið-inga voru forsjállega raktir í allar áttir, eins langt
og komizt varð; og þessi aðferð hefir haft svo
far-sælar afleiðingar, að mannleg skynsemi verður að>

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0020.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free