- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
20

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 20 —

Viti raenn nú þar að auki stærðina, gefur að
skilja, að finna megi þéttleik jarðanna, eins og
ann-ara hluta, þá hvorttveggja er borið saman sín á
milli. Sólin víkur samt töluvert frá reglunni, því
með réttu lagi hefði hún átt að vera þyngst í sér,
þar sem hún er kjarninn úr öllu sólkerfinu, en
þyngd hennar er eftir tiltölu ekki meiri en fjórði
partur á við þyngd jarðarinnar. Þetta er samt hægt
að útlista, því eftir öllum líkindum geisar afl
hit-ans í sólunni fremur en hinum hnöttunum; en það
er eðli hitans, að hann þenur út alla hluti, einkum
hina loftkynjuðu parta, svo þokuhvolf sólarinnar er
að líkindum afar-mikið, en það er fullt af ljóma
og ógagnsætt, svo menn verða að mæla það með,
þegar menn leita að stærð sólarinnar. Eftir
skoð-unarhætti þessara vitringa fer það nú einnig að
líkindum, að jarðirnar liggja allar, að kalla má, í
einu belti kringum sólina; því þær mynduðust
allar um miðbik hnattarins mikla, meðan hann í
sí-fellu veltist um hjólgadd sinn. — Þá er það eitt,
sem enn fremur styrkir þessa tilgátu. Jarðirnar
ganga allar frá vestri til austurs kringum sólina, en
hún er sjálf í miðju sólkerfinu, og veltist þar um

fræðinni, hafa menn fundiö þyngd þeirra og þéttleik. C a w e
n-disch reiknaði þaö fyrstur, og de la Place á eftir honum,
og bar þeim mjög saman. Þyngd jarfianna og sólarinnar, þá vor
jörð er valin fyrir mælikvarCa, er sem nú skal greina:

Venus l’/i hér um bil 6,87 sinnum þyngd vatnsins.

JörSin X - 5,48 — — —

Marz % - 4,09 — — —

Júpíter Yi –- 1,39 — — —

Satúrnus 1/10 - 0,55 — — —

Úranus % - 1,39 — — —

Sólin Yí - 1,39 — — —

Merkúrfus felst mjög í sólargeislunum, og hefir ekki oröið viS
hann átt. Nýju jarSirnar litlu, Ceres, Pallas, Juno og Vesta, hafa
ekki heldur, svo ég viti, ennþá verið lagtSar á metaskálarnar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0028.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free