- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / III. Dagbækur,Yfirlitsgreinar o. fl. /
30

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 30 —

áþekkt í öllum norðvesturhluta vorrar álfu, og sjá.
menn það á dýraleifunum í Englandi, Frakklandi,.
Þýzkalandi og Niðurlöndunum. (Danmörk hefir þá
enn verið í kafi). í öllum þeim löndum eru hellar og
gryfjur undir jörðinni, er menn kalla bein-hella, því
þeir eru fullir af beinum, og þau eru flest-öll úr
galt-arbræðrum (Hyæner), eða þá bjarndýra-bein.
Inn-an um þetta er að sjá hnútur og tennur úr fílum, og
fyrir nokkrum árum fannst einn þeirra óskaddaður
í ísjaka, austan til í Rússaveldi. Hann var álíka og
fílarnir eru nú á Indlandi, nema hvað hann var
all-ur loðinn. Það er sjálfsagt eitthvert elzta kjöt, sem
borðað hefir verið. Aftur í hellum við Miðjarðarhafið
finna menn bein úr annari dýrategund, og héldu
menn lengi það væru mannabein; en þegar Cuvier
sá þau, mælti hann á móti því, og leiddi fullkomin
rök til, að þessi bein væru úr því dýrakyni, er nefnist
geithjörtur (Antilope).

Eftir flóðið hafa löndin að mestu leyti verið
bú-in að öðlast þá mynd, sem nú hafa þau, og upp frá
þeim tíma hefir einnig veðráttufarið skipt sér eftir
himinbeltunum, eins og það gerir enn í dag. Þetta
hefir orðið að koma til af því, að jarðhitinn minnkaði
í flóðinu, hvað sem því hefir ollað; en vilji menn
geta einhvers til, mætti útlista það svona. Niðri í
.jörðunni eru víða gjótur og gjár, fullar af vatni;
vatnið hitnar smátt og smátt af jarðeldi, vellur og
sýður, og verður sumt að gufu. En er hún magnast,
svo að enginn hlutur fær hana staðizt, þá brýzt hún
upp úr undirdjúpinu, og keyrir vatnið á undan sér
viðlíkt og Geysir á Islandi. Þá hitnar hafið og
löndin fara í kaf, og allt, sem á þeim er, seyðist og hylst
í sandi og bleytu. En vötnin kólna smátt og smátt,
og gufan brýzt út úr gjánum, þangað til þær tæm-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:31 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/3/0038.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free