Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 192 —
Þegar verða miklir landskjálftar, bifast sjórinn
með öldugangi, og stundum á miklu sviði í einu;
svo æsist hann og stundum ógurlega og hleypur
langt upp á lönd. Svo var t. a. m. þá Lissabon féll
i landskjálftanum 1755, um sama leyti og Katla gaus
á íslandi, að sjórinn við Cadizborg gekk 60 feta hátt
yfir vanalegt ílóðmál og 18 fet vestur á Madéraey,
og fannst öldukastið víða á Englands- og
íslands-ströndum, þótt það væri þar minna. Þessi hræring
sjávarins er með öllu ólík hafróti, þá öldur rísa fyrir
vindi; hafið titrar, og skip, sem eru á siglingu og
undir róðri eður liggja við festar, hnykkjast við og
nötra, svo brakar í hverju trje, eins og þau hefðu
rekið sig á sker.
Á undan landskjálftum eru vanar að fara dimmar
dunur í jörðunni, og låta á ýmsan hátt, eftir því,
sem landslagi er varið; stundum líkjast þær fjarlægri
þrumu, stundum skothríð, stundum nið af fjallskriðu.
Þetta hljóð breytist á marga vegu eftir því sem
jarð-lög þau eru breytileg, sem landskjálftinn hrærir.
Hræringin sjálf verður með ýmsu móti; ýmist
skekst jörðin til hliða, fram og aftur, eður hún gengur
upp og niður, og þegar svo er, fylgja því oftast nær
dynkir og brestir með stórum dunum, en
jarðvegur-inn rís og fellur eins og öldur á sjó; stundum eru
hræringarnar líkastar því, sem jarðvegurinn þyrlist
og hringsnúist. Oft koma landskjálftar, sem ekki
verður vart við, nema á litlu svæði; aftur fara sumir
þeirra á svipstundu yfir mikla víðáttu.
Sjaldan kemur svo ein hræring, að ekki komi
fleiri á eftir; fara þær ýmist vaxandi eður minkandi
með mislöngu millibili. Þó er ætíð uggvænt, að hin
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>