- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
193

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 193 —

fyrsta hræring hafi ekki verið hin mesta, og er því
varlegra, þegar snögglega finnst harður landskjálfti,
að forða sér úr húsum um stund og bíða þess, hvernig
hinir verði, sem búast má við, að komi rétt á eftir;
fari þeir þá minnkandi, er hættan oftast nær umliðin í
það sinn. Engin ein hræring stendur lengi yfir í senn,
og varla meir en 2 mínútur, þegar lengst er, og
oftast nær að eins fáeinar sekundur, en oft koma margar
í hrífu, hver á eftir annari, og er það svo að skilja,
þegar t. a. m. segir í annálum, að hús hafi hrærzt
hálfa stund. Þegar hörðustu skjálftunum er lokið, er
það samt oftlega, að fullkomin kyrð kemst ekki á í
bráð og smá-hræringar eru að koma við og við, svo
vikum skiftir og stundum mánuðum.

Það er enn markvert um jarðskjálfta, að svo
þykir sem veðráttufar breytist, þegar þeir eru
af-staðnir; kólnar ioft, og snýst oft upp í úrfelli, og er
það margreynt á íslandi og annarstaðar. Hið
merk-asta dæmi þess vita menn úr Vesturheimi. Um miðbik
Vestur’heims liggur Qvító, all-hálent hérað. Boug[u]er
nokkur, náttúrufróður maður, hafði fundið, að
loft-hiti þar var vanur að vera 14—15° H. 1797 geysuðu
þar afar-miklir jarðskjálftar, og af þeim afstö^num
kom Humboldt í þetta land, nafnfrægur spekingur;
var þá svo skift um, að hitinn var þar oftast nær
4—10° og sjaldan 16 eður 17. Slík umbreyting á
loftslagi er eins dæmi.

Landskjálftar eru all-tíðir á íslandi og fer það að
líkindum í því landi, sem er svo undirgrafið af
jarð-eldi; en oftast nær eru það svo vægar hræringar, að
ekki verður tjón af, og eru því ekki í frásögur færðar
af þeim rökum, sem upph iflega er sagt í þessari

13

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0205.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free