Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 194
grein. Og þótt sumir landskjálftar þar hafi orðið nógu
voðalegir, komast þeir samt í engan samjöfnuð við
þær ógnanir, sem landskjálftar haía oftsinnis leitt yíir
stórborgir og heil lönd annarstaðar á hnetti vorum;
eigum vér eílaust að þakka það hinum mörgu
eld-gígum á landinu, sem Ijúka svo fúslega upp fyrir
jarðeldinum undir niðri og leyfa öflum hans frjálsa
framrás fyr en þau magnast um of. Landið ber líka
með sér, að stórkostlegar hræringar, sem vér getum
nú varla gert oss neina hugmynd um, hafa geysað
þar í fornöld og líkast til áður eða um það leyti, sem
hin síðasta ísöld hófst, er hefir framleitt allt það,
sem vér í daglegu tali eignum jarðeldi, það er
eld-fjöll öll og brunahraun, og brennisteinsnámar og hverir
og laugar, sem svo mikil gnægð er af víða um
landið. Þá hafa ekki verið hús til að hrynja, né
neinn til frásagna, en fjöllin sýna sig sjálf; þau eru
víða rifnuð í sundur og heilar hlíðar fallnar fram.
Svo eru framkomnar flestar þær dyngjur, er víða
fylla upp þvera dali og vér almennt köllum hóla,
sem margir bæir eru við kenndir; sjást enn eftir í
fjöllunum þar fyrir ofan djúpar og breiðar skálir; en
árnar hafa stíflazt upp fyrir ofan og orðið svo með
tímalengdinni að brjóta sér djúpan farveg gegnum
stíílurnar til að ná framrás. Af þessu kemur, að dalir
fyrir innan slíka hóla eru oít sléttir fjalla í raillum,
því þar sem árnar stífluðust, hafa þær myndað
stöðu-vötn um stund, svo dalbotnarnir eru þar raunar fornir
vatnabotnar. Víða hefir landið lyftst upp og hækkað
rnjög úr sjó, en sigið niður og sokkið á öðrum
stöð-um, svo sem er Þingvallahraun allt, millum
Almanna-gjár og Hrafnagjár, og er þaðan upp komið Þing-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>