Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 226 —
fyrir ofan hana heitir Kringilsárrani; er þar efst
aurgarður um þveran ranann og vatn fyrir ofanr
er liggur inn-undir jökulbrúnina, og fellur þaðan>
lítil á, nafnlaus, í Kringilsá.
c. Gljúfurkuísl kemur því næst, fyrir ofan
Kringils-árrana; hún er hið versta vatn, bæði mikil og fúlr
og fellur skjótt í Jökulsá; er þar ekki milli þeirra,.
utan oddi einn, er gengur fram-af jöklinum. Því
næst kemur
d. Jökulsá sjálf, og er þar lítið vatn að reikna í
samanburði við hin önnur jökulvötn, er í hana
falla. Austust er svo-kölluð
e. Jökulkuísl; það er mikið vatn og fellur til
norð-urs í Jökulsá; tungan millum þeirra heitir
Maríu-tungur.
Þegar þessi 5 jökulvötn eru komin saman, falla
þau sem fyr segir til norðausturs ofan af fjöllum, eftir
Brúardal og Jökuldal endilöngum og svo út millum
Jökulsárhlíðar að vestan og Tungunnar að austan,
fram til sjávar vestarlega á Héraðssöndum. Á þessari
leið fellur enn fremur allmikið bergvatn í Jökulsá,.
því margar þverár streyma í hana af fjöllum ofan
beggja megin að, og skal nú telja þær eftir röð neðan
að og upp-eftir Jökulsárdal.
a. Að vestan:
Tvær ár falla úr Hlíðarfjöllunum austur í Jökulsár
nl. Kaldå, er rennur millum bæjanna Sleðbrjóts og
Fögruhliöar, og Laxá, er kemur úr Smjörvötnum á
Smjörvatnsheiði og rennur utanvert við túnið á
Foss-velli. í henni er fagur foss, sem bærinn dregur nafn
af. Báðar þessar þverár eru straumharðar og
stór-grýttar, og verða oft óreiðar í leysingum og stór-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>