- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
227

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 227 —

rigningum. Á Jökuldalnum eru þessar ár: Ytri-deild
og Innri-deild eru tvær ómerkar smáár neðst í
daln-um; rennur hin síðari niður í Jökulsá fyrir vestan
bæinn á Haukstöðum.

Huammá er og vatnslítil; hún rennur fyrir vestan
völlinn á bænum Hvammá.

Suelgsá, sem kemur því næst, er einnig lítil og
ómerkileg.

Stadará fellur ofan fyrir vestan völlinn í
Hof-teigi; hún steypist fram-af fjallinu í þrem fossum, og
er sá hinn neðsti bæði hár og fagur, og fellur á
mó-bergi, með fögrum graskinnum umhverfis. Því næst
kemur Teigará, fyrir innan hinn forna hofteig; hún
er mjög stórgrýtt og fellur í háum fossi fram af
heið-arbrúninni. Það er og á móbergi, og nokkuð stöllóttu,
en hæðin er á milli 60 og 70 faðma.

Sauðá rennur fyrir vestan Hjarðarhaga, og næst
henni Garðá (þar sem bærinn stóð fyrrum); eru þær
báðar vatnslitlar, en stórgrýttar og falla i mörgum
sináfossum. Þá koma: Yzta-Rjúkind, Mið-Rjúkind og
Fremsta-Rjükind, og er hin fyrst-talda bæði
vatns-mikil, ströng og stórgrýtt, og allar eru þær með
mörgum fossaföllum ömerkum. Gardå, vatnslitil, en
ströng og smáfossótt, rennur hjá Skjöldölfsstöðum.

Gilså er fyrir vestan Skjöldólfsstaði, vatnsmikil
og öttalega ströng og stórgrýtt; á henni og
Yztu-Rjúkind haldast aldrei vöð ári lengur, og eru þær
ætið hættuleg vötn.

Hnappå er millum Arnþórsstaða og
Hákonar-staða og Hnúksá nokkru vestar, báðar með mörgum
smáfossum.

12*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0239.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free