- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
228

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 228 —

Kringilsá, lítil, og Búðará, lítil og ófossótt, eru
báðar millum Hákonarstaða og Eiríksstaða.

Þverá fellur millum Eiríksstaða og Brúai; hún
er mikið vatn og stórgrýtt, og er á henni dráttur á
sumrum.

Garðá, rétt fyrir innan Brú, er lítið vatn.

Laugaruallaá fellur um Laugarvalladal; svo
kem-ur Reykjará og svo Vesturdalsá í Vestur-árdal. Eru
þá bergvötn þrotin að vestanverðu og kemur þar
næst Sauðá, sem áður er nefnd. (25 ár).
b. Að austan íalla þessi bergvötn í Jökulsá:

Hvammsá er neðst, hér um bil 3 fjórðunga mílu
fyrir innan Trébrú; lítil á og ómerk.

Garðá rennur við túnvöllinn á Giljum, neðsta
bæ austan-fram á Jökuldal; lítil á.

Sandá og Teigará renna millum Gilja og
Skeggja-staða, þær eru stórar og strangar í rigningum og
snjóaleysingum.

Garðá er næst Skeggjastöðum og því næst Húsá,
er skilur land milli Skeggjastaða og Hefilsdals; þær
eru báðar viðlíka mikil vötn og hinar næst á undan.

Hefla er innan-við Heíilsdalstún, mikið vatn og
stórgrýtt; á henni er hafður kláfur á sumrum.

Valagilsá skiftir löndum milli Heíilsdals og
Ás-geirsmerkis, og fyrir innan merki koma: Tregagilsá
og Kambagilsá; allar þessar þrjár ár íalla í nánum
smáfossum ofan af fjallsbrún og niður í Jökulsá, og
eru vöð á þeim breytileg og heldur í 11.

Sauðá, Leiðará og Gardå, næst Klausturseli, eru
allar litlar ár, en mjög grýttar.

Fossá kemur næst við Klaustursel, með mörgum
smáfossum; þá Víðirdalsá; báðar vatnslitlar, en grýttar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0240.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free