Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 229 —
Þá Eyuindará, sem fellur eftir Eyvindardal;
vatns-mikil og stórgrýtt. Þá kemur Sauðá, smáfossótt og
vatnslítil, og Hölkná, mjög stórgrýtt og vatnsmikil,
með hvikulum og illum vöðum; liggja báðar millum
Bratta- (Brettings)gerðis og Hrafnkelsdals. Þá kemur
Hrafnkela sunnan Hrafnkelsdal, býsna-mikið vatn, og
fellur á sléttum söndum út í Jökulsá; í hana falla
inn-á dalnum Glúmstaðaá, Þuríðarstaðaá og Grjótá.
Dysjará, Smjörtungudalsá og Sauðá falla ofan af
fjallinu milli Hrafnkelsdals og Jökuldals í austanverða
Jökulsá, og eru þær innstar þessu megin.
Allar þessar 25 ár, sem nú voru taldar, hafa
upptök sín til og frá á fjallgarðinum millum
Fljóts-dalshéraðs og Jökuldals, og koma úr lækjum, lindum,
tjörnum, smávötnum og flóaflesjum þar á heiðinni.
Af þessu má ráða, hvilíkt vatnsmagn vera muni
í Jökulsá, enda er hún eitthvert hið mesta stórvatn
á íslandi. Hún er hvergi reið, að kalla má, milli fjalls
og fjöru, nema ef telja skyldi vað undan Hofteigi, sem
raunar er allgott, ef vatnsmegnið væri ekki svo
fjarska-mikið, og má vel hleypa það, þegar áin er í sem
minnstum vexti. Að vísu er hún og stundum riðin á
einstöku stöðum, þegar út eftir dregur, millum
Jökuls-árhliðar og Tungunnar, en aldrei samt nema þegar
hún er sem allra minnst, og varla má það fært kalla.
Mest yfirferð yfir ána er á trébrú þeirri, sem byggð
hefir verið yfir hana á almennan kostnað. Hún er
skammt niður-frá Fossvelli, innsta bæ í Jökulsárhlið
og er lögð yfir klettagljúfur 24 álna breitt. Þegar áin
er í meðalvexti er þar 10 faðma hátt undir brúna
neðan frá vatni, og vatnið þar undir hér um bil 15
álnir, og fleygist það þó þar fram með hinum mesta
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>