Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 230 —
ofsastraumi, eins og kólfi sé skotið fram á milli
bjarg-anna. En þegar mikill vöxtur er í ánni og jakaferð,
fyllir hún því nær gljúfrið og nemur upp undir brúna,
og við hefir borið, að hún hefir brotið brúna af sér,
og seinast 1625. Brúin, sem nú er á Jökulsá, var
byggð 1819, og er hún sæmilega sterk og 3 álna
breið.
Auk þessarar brúar eru kláfar á köðlum, eða
svo-kallaðir drættir, hafðir á ánni á fimm stöðum á
Jökuldalnum, frá bæjunum Hjarðarhaga,
Arnþórsstöð-um, Hákonarstöðum, Brettingstöðum og Brú. Verður
þeim svo vel viðkomið, af því áin fellur þar á
flest-um stöðum í diúpu og þröngu klettagljúfri. En
þeg-ar dregur út millum Jökuslárhlíðar og Tungunnar, er
víðast hvar að henni flatlendi og sléttir sandar, og
verða þar á fáeinum stöðum hafðar ferjur. Hin helzta
þeirra er nú sem stendur undan Sleðbrjóti. Nokkrum
sinnum hefir stórvatn þetta breytt farveg sínum þar
sem það fellur í sæ, og rifið sig á ýmsum stöðum
út í gegnum héraðssandana. Eru þar fyrir landi
mikl-ar grynningar og sandrif úti fyrir, og árósinn ekki
skip-gengur, sökum straumhörku.
Lagarfljót fellur í norðaustur beint til sjávar,
eftir miðju Fljótsdalshéraði. Það byrjar, með því nafni,
inn-við svo-kallaðan Fljótsbotn, inn-í Fljótsdal, skammt
fyrir neðan Langhúsamúla, er gengur fram millum
Norðurdals og Suðurdals og liggur milli sveitanna
Fella og Tungu (Hróarstungu) að vestan og Valla,
Eyða-þinghár og Hjaltastaða-þinghár að austan. Það
er raunar langt og djúpt stöðuvatn, framan eður
inn-an frá Fljótsbotni og þangað til yzt fyrir Fellum, þar
sem það tekur að mjókka og koma nokkur straumur
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>