Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 231 —
i það, en þar fyrir innan er það 500 til 800 faðma
breitt og á einum stað allt að 1200 faðma, og víða
hvar hyldjúpt, 30 til 40 faðmar, og sumir segja
jafn-vel 80 eða 100 á sumum stöðum, þótt það, eftir
landslaginu til að geta, sé heldur ótrúlegt. Þegar
dregur út með Tungunni, mjókkar það enn meir, og
fellur þar spölkorn í hörðum stokk eftir gljúfri fram
að Kirkjubæjarfossi; þar er flúð um þveran farveginn
og hryggur eða sker á miðri flúðinni og klýfur vatnið
i tvo fossa; er hinn eystri þeirra beinn, en hinn
vestri nokkuð afliðandi. Breiddin yfir báða fossana
er hér um bil 50 faðmar og hæð þeirra nálægt 12
föðmum. í Fljótsdal er ekkert vað á Lagarfljóti, en í
Fellum er eitt vað utarlega, sem heitir
Einhleypings-vað, og út með Tungunni, fyrir ofan fossinn, eru 2
vöð, allgóð yfirferðar, þegar ekki er í því vöxtur, og
heita þau Steinavað og Hesteyrarvað; en úr því
kemur út fyrir fossinn, er fljótið alls staðar óreitt.
Lög-ferja er á fljótinu frá Ekkjufelluseli, utarlega í Fellum,
skammt fyrir ofan Einhleypingsvað, og önnur frá
Kirkjubæ, fyrir neðan fossinn; er fljótið þar 5 til 6
faðma djúpt í meðal-vexti og ekki mjög strangt, og
þaðan út til sjávar geta verið 3 ferjustaðir, og eru
þeir stundum notaðir. Ferjur eru og á fleirum
stöð-um, t. a. m. undan bæjunum Rangá og Straumi, en
ekki eru þar fleiri vöð né lögferjur en nú var talið.
Útgrynni er mikið fyrir Lagarfljótsmynni, likt og
Jökulsá, en þó má með flæði leggja smáskipum inn
um ósinn, og er það stundum gert.
Nú skal segja hverjar ár renna í Lagarfljót og
hvernig allt það vatn dregst saman, sem þar kemur
lil sjávar á einum stað.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>