Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 246 —
stór lækur, utarlega ofan-úr Grænu-nípu; hún er yzt
sunnan-fram.
í Stöðvarfirði eru þessar ár.
Að norðan fram:
Einarstaðaár tvær; þær taka sig upp, hin ytri
sunnanundir vörpum Víkurheiðar og hin innri undir
rótum fjallanna fyrir innan heiðarvarpið; þær renna
um stórgrýtta farvegu millum melhryggja og koma
til sjávar næstum hvor hjá annari fyrir neðan túnið
á Einarsstöðum; þær eru báðar vatnslitlar, og vöð á
þeim niðri hjá Einarsstöðum.
Vallá innri rennur eftir Sauðdal í útsuður og
síðan til suðurs fram úr honum til sjávar.
Vallå ytri kemur ofan úr utanverðum Sauðdal
eystra megin og rennur nærfellt jafnsíða hinni innri;
báðar eru þær fremur lækir en ár, en geta samt
orðið illar í vatnavöxtum, því þær eru bæði
strang-ar ár og apal-grýttar.
Stutta-dals-lœkur rennur til suðvesturs úr
Stutta-dal.
Þuerá rennur eftir Jafnadal og eru upptök
henn-ar tvenn; aðaláin kemur norðvestan frá Lakaskarði
og rennur fyrst i hafaustur, en neðan- og innan-undir
Stöðvarskarði spretta lækir upp, er síðan renna saman
og verður úr þeim annar hluti árinnar; þar sem
kvísl-arnar koma saman, heitir Tunga, og úr því beygist
áin til suðausturs og rennur svo fram dalinn að
inn-anverðum enda á svo-kölluðum Stöðvarás, fellur þar
ofan í á að gizka 10 faðma háum fossi, og tekur úr
því við henni gljúfur, sem stefnir í suðvestur, og
rennur hún þar mest á klöppum og steinkötlum, með
mikilli veltu og hvitfyssi; þar sem gilið þrýtur, fellur
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>