- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
257

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 257 —

tangi milli óssins og fjarðarins. Um flóð og fjöru er
allmikill straumur í ósinum, en vægur þess á milli, og
dýptin með fjöru hér um bil 7 fet; má af því sjá,
að þar er vel leggjandi inn smáskútum. Það er og
alkunnugt, að fornmenn lentu þar skipum sínum, og
má þar enn sjá búðastæðin við ósinn út og ofan
undan Geirastöðum. Mikill selur gengur þar upp, og
þykir ekki örvænt, að þar myndi vel heppnast
sel-veiði, ef kænlega væri tilstillt og með nægum
til-kostnaði og atorku.

Torfalœkur kemur úr Torfavatni og rennur á
sóknamótum milli Þingeyra- og Hjaltabakka-sókna
til-^tnorðurs í Húnaós.

Laxá kemur úr Svínavatni og rennur fyrst í
út-norður, fram að Hjaltabakka, og þaðan fyrir ofan
fjörur vestur í Húnaós. í benni er einn foss, ekki
hár, er fellur ofan stölluð hamrabelti, og er þar
stunduð laxveiði undir fossinum, enda gengur mikill
lax í ána og myndi þar geta verið góð veiði.

Blanda er allmikið jökulvatn. Hún hefir upptök
sin úr nokkrum smákvíslum, sem koma undan
suð-vesturhorni Hofsjökuls, og heitir fyrst Blöndukvisl,
þar sem þær koma saman. Rennur áin þar fyrst til
útnorðurs og beygist siðan hjá Kjalhrauni rétt i
norður, og heldur þeirri stefnu til byggða. Í hana
renna:

a. Svartakuísl og b. Strangakuísl, báðar úr
Hofs-jökli; er hin fyrri svört á lit, en hin síðari ljósleit;
c. Herjólfslœkur, úr flóum; d. Beljandi; e.
Hauga-kuísl, er dregur nafn af Vékelshaugum á
Eyvindar-staðaheiði; f. Galtará, kemur úr Galtarárdrögum, og
yzt g. Refsá. Allar þessar ár falla i austanverða

17

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0269.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free