- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
261

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 261 —

Gunnarssker, kennd við Gunnar Þiðranda-bana,
liggja hvort hjá öðru hér um bil á miðri Njarðvík; þau
eru 7 að tölu og gengur sjór yfir þau með flóðinu.

Hafnarhólmi liggur á Borgarfirði, fram-undan
bæn-um Höfn. Hann er klettum gyrtur umhverfis og eru
þar tvær víkur, sem lenda má í. Þar er nokkurt
æðarvarp.

Kaupmannsstapi og Almenningsfles liggja hvort
hjá öðru fram-undan [nesinu] millum Borgarfjarðar
og Brúnavíkur.

Seley liggur úti fyrir Reyðarfjarðarmynni, hér um
bil viku sjávar suðaustur af Krossanesi. Hún er sögð
hér um bil 160 faðma löng og 60 faðma breið.
Norð-vestan við hana er svo-kallaður Hólmur, næstum
áfastur henni og suðvestan við hana eru 3 sker, sem
heita Eyjarsker, Miðsker og Setusker. Eyjan sjálf er
nokkuð há, með bjargi að norðaustanverðu, og
sum-staðar mjög grýtt; samt er nokkur grasvegur á henni,
og eins á Hólminum, en skerin eru með öllu
gras-laus. Lending er þar hin hættulegasta og sífelld brim;
samt liggja menn þar til útróðra á vorum og þykir
þar allgóð veiðistaða; þar mætti og líklega verða gott
æðarvarp, ef það væri friðað, en það hefir ekki verið
gjört og hafa þvi hingað til aldrei orðið not að því.

Hólmahólmar. Það eru 5 varphólmar, er svo
heita: Stórhólmi, Yzti-hólmi, Flathólmi, Hraukhólmi
og Landhólmi. Þeir liggja yzt við norðurlandið á
Innra-Reyðarfirði, fram-undan Leiðarhöfða, og er Stórhólmi
þeirra mestur, hér um bil 120 faðmar á lengd og 40
til 50 faðmar á breidd, en hinir minni og minni, eftir
þeirri röð, sem vér nefndum þá í. Þar er ágætt æð~
arvarp (150 pd. í meðalári), og verpir bezt í Yzta-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0273.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free