- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
263

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 263 —

henni heldur að sunnan flughátt berg, en að norðan
sæbrattar klappir. Upp af þessari vik gengur hellir
einn mikill; hann er rümlega 50 faðmar á lengd og
meðal-steinsnar á hæð, og þrengist svo um miðbikið,
að þar eru að eins nokkurs konar stórgjörvar dyr
millum fram- og inn-hellisins, er breikkar mjög til suðurs
fyrir innan dyrnar og er þar nálægt 50 föðmum á
breidd. í framhellinum er bjart að framan og verpir
þar fjöldi af ritfugli (rita, rilla) upp um allt bergið.
Allur hellirinn liggur i vestur og eru veggir hans að
sunnan og vestan þvergnipt bjarg, en að
norðan-verðu gengur niður frá hvelfingunni allt fram til
miðs lausagrjóts-skriða af bleikum Drápu-steini, og
fyrir framan hana kemur aftur bjargveggur undir
mestöllum hellinum. Gólfið er óslétt og fullt af
stein-um, sem fallið hafa úr berginu. í innra hellinum er
heldur draugalegt og svo dimmt, að þar sést engin
skima, nema litil undirbirta, þegar menn hafa staðið
þar nokkra stund; þá er til að sjá innanvert upp-eftir
skriðunni sem þar sé litlar dyr, en þegar skoðað er
við Ijós, er það að eins grunnur skúti. Þaðan er
sprottin sú hégilja, að skúti þessi sé dyr á afhelli
nokkrum með járngrindum fyrir. Á þar að búa
bjarg-búi einn, sem kallaður er Skrúðs-bóndi, og segja gamlir
menn hann hafi eitt sinn til forna hleypt skriðu
þess-ari á 18 menn, sem hnýsast vildu um byggð hans*).

*) Margar sögur ganga enn af Skrúðs-bóndanum, t. a. m., að kona hans
sé prestsdóttir frá Hólmum í Reyöarfirðí; seiddi hann að henni og fryllti hana,
svo hún sigldi út til hans á fjöl. Eítt sinn tepptust vermenn I Skrúð og kváðu
Maríu-rimur í framhellinum; kallaði hann þá til þeirra og sagði: »Nú er
skemmt konu minni«; og er þeir spurðu hvað honum geðjaðist, sagðihann:
»Andrarímur er gott að heyra«. Sagt er og, hann taki alla hornótta hrúta í
hagatoll, sem settir eru í Skrúö, og var það lengi siöur Vattarness-bænda, að

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0275.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free