- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
265

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 265 —

yfir það sjór í stórbrimum. Á austanverðu skerinu
er grastorfa og er þar æðarvarp.

Andey liggur litlu utar fyrir norðaustanverðu
fjarðarmynninu, rétt suður af Hafnarnesi. Hún er iU
milu að lengd í suður og norður og ’/12 mílu á breidd,
þvergnípt og klöppótt að utan, en uppi víðast
mýr-lend og flöt; inn í hana að norðan skerst
Andavog-ur hann [er] tvær til þrjár teigshæðir á lengd og
sextugur á breidd. í botni hans er all-laklegt
báts-uppsátur, og lending að eynni hættuleg bæði þar og
annars staðar, nema í ládeyðu fyrir kunnuga. Að
sunnan gengur inn annar vogur, styttri, sem
Harð-greip er kallaður, og sýnir nafnið, að lending er þar
ekki Ijúffellileg. Þar er æðarvarp og þykir torvelt að
verja eyjar þessar fyrir ráni Flæmingja, sem jafnan
flækjast þar úti fyrir framan-af sumrum.

Hafnarfles heitir stórt sker, sem liggur úti fyrir
Eystra-Hafnarnesi, norður frá Andey; örskammt frá
horni þess til hafsuðurs er leyniboði, svo þar er ekki
óhætt á bátum. Milli flesjarinnar og Andeyjar er og
grunnsævi mikið, er Ribbur heitir, svo varla eður ekki
er íært hafskipum, þótt það kynni að fleytast um
sund eitt, er nefnist Engihjallasund, litlu norðar en
miðsvæðis milli lands og eyjar; þó verður þar í
brim-sjó ófært á bátum. Millum flesjar og lands gengur
sund, sem fært er i ládeyðu á bátum og liggur
bet-ur við follum, en i því eru að norðan 3 leynisker,
varasöm.

Víkursker er boði á Víkurbót.

Gunnarssker er klettur utanvert við Skálavík; þar
liggur Gunnarsboði fast inn og suður af skerinu, og

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0277.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free