- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
267

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 267 —

Önglaboði liggur skammt fyrir utan Hvopu.

Lárungar heita blindsker sunnarlega i
Kamba-röst, sem oftast nær brýtur á, og þykir ekki fær
skipa-leið inn á fjörðinn fyr en komið er suður fyrir þá.

Blótólfsboði liggur góðan spöl norðaustur-af
Lár-ungum; hann er fyrir utan Kambaröst.

Sker á Breiðdalsfirði, sem upp úr sjó standa,
heita svo: Fåla, Axarsker, Stampur, Suður- og
Norður-Rifsker, Bakur, Sprökunaggur, Hlaða, Hlöðusker og
Streitisfles, sem liggur fyrir sunnan Hvarftanga.

Hvalsbakur er stórt sker, sem liggur 4 vikur
sjávar austur-suðaustur af Hvarftanga og hér um bil
6 milur beint austur af Berunesi; það mun vera sama
sem Olavius kallar Geirfuglasker, og segir hann það hafi
verið forn venja að fara þangað út um
Jónsmessu-leitið og veiða þar geirfugla og seli; en á hans
dög-um (c. 1775) voru þessar ferðir með öllu aflagðar.

Fram-undan Berufirði, Búlandsnesi og
Hamars-firði liggur mjög mikill eyja- og skerja-klasi, og skal
nú reyna að lýsa afstöðu þeirra og ásigkomulagi
svo greinilega sem auðið er.

Titlingshólmar eru 3 litlir æðarvarpshólmar, sem
liggja utarlega við suðurströnd Berufjarðar.

Rastarsker liggur utarlega sama megin í
Núps-röst, og þar suður-af eru grynningar og smáboðar.

Bjarnarsker, Trénef og Langi-boði liggja fyrir
landi milli Núps og Kross, og fleiri eru þar
grynningar. Boði er og undan Krossi, og í stuttu máli að
segja er sjór mjög óhreinn meðfram allri
Berufjarðar-strönd, næstum því inn í gegn.

Papey er byggð. Hún liggur viku sjávar
suð-austur-af Búlandsnesi og er hér um bil 3/< rnílu

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0279.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free