Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
274 —
suður til Fiskihnaggs, er liggur austan-undir
Hnara-sundi, beina stefnu af Yzta-Kálk. Við sjálft
Hnara-sund liggja 3 boðar, kenndir við sundið, einn utan-til
í því, sunnan-megin, og hinir tveir skammt hvor frá
öðrum, innan-til við það austan-fram. Suður af Sandey
liggur Sandeyjarsker og suðvestur af þvi 2 sker litil,
hvort suður af öðru, sem heita Fiskihnaggar. Millum
þeirra liggur Róðrar- eður Djúpa-sund. Millum
Syðra-Fiskihnaggs og Þvottáreyja liggur lítið sker, og sundið
milli þess og eyjanna heitir Krikasund. Innan-fram
Syðra-Fiskihnaggs liggur boðaklasi, sem heitir
Brúns-ribba, og út-af Krikasundi liggja tveir boðar, hvor hjá
öðrum, en Bergskerið, sem fyr er nefnt, liggur inn-af
því. Fram-undan Sundaskerjum, nálægt V2 viku sjávar,
liggja tveir boðar i Hrómundarbót, einu nafni kallaðir
Bótarboðar; hinn eystri þeirra liggur út af Djüpa-sundi
i Sundaskerjum og er því einnig kallaður
Djúpa-sunds-boði; á honum er 6 faðma dýpi; hinn syðri liggur út-af
Breiða-sundi og heitir Breiða-sands-boði. Hér um bil
V4 viku suður og út-af Skjöldum liggur sker eitt
nafn-laust. Ketilboðasker er stórt sker og hátt; það liggur
út-af Djúpa-sundi, milli Þvottáreyja og
Búlandsness-lands, og ber þaðan í Hellisborg í Papey. Tvö önnur
mjnni sker liggja milli þess og Skorbeins; heitir hið
syðra þeirra Kolla og hið eystra Langa. Miðja vega
milli Kollu og Ketilboðaflesjar liggja 3 boðar, hver
aust-ur af öðrum og skammt hver frá öðrum; sá austasti
þeirra nefnist Helluboði, hinir tveir Ketilboðar.
Norð-vestur af sömu fles, skammt frá, er og boði með sama
nafni. Sundið milli Löngu og Skorbeins heitir
Breiða-sund, og í því liggja 3 boðar; hinn syðsti þeirra, sem næst
liggur Löngu, heitir Breiða-sundsfboðiJ, mikill ummáls,.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>