Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 279 —
um kring. Þar héldu eyjabúar vörð í mörg ár eftir
Tyrkjaránið 1627, og stendur þar enn hæst uppi byrgi
varðmannanna, hlaðið úr steinum. Skammt suður
þaðan er Sæfjall. Það liggur frá landnorðri til
útsuð-urs og er aflíðandi til beggja enda, með skriðum og
flám norðan-á-móti. Hlíðin, sem að sjónum veit, er
afar-brött og kafloðin af grasi, og hamrar neðst við
sjóinn; sækja því stórgripir þangað og hrapa einart
fyrir björg, svo aldrei sést neitt af þeim framar.
Skútagjögur eru og i fjalli þessu framan-í-móti.
Leit-ar sauðfénaður þar hælis á vetrum, og er mannhætta
að hafa þar umgengni. Uppi á Sæfjalli eru tveir
klettahnjúkar, sem heita Háu-búr. Laust frá Sæfjalli
liggur Keruíkurfjall, frá útnorðri til landsuðurs; það
er ávalur fjallhnjúkur, ekki hár landmegin, en
hengi-flug þeim megin, sem til sjávar veit. Vestan-til við
það er lítill, kringlóttur grasflötur, sem heitir
Lyng-fellisdalur. Fyrir sunnan Kervikurfjall liggur
Litli-höfði; hann snýr frá útsuðri til landnorðurs og er
hann flatur að ofan, og þar að mestu leyti graslaus,
en umhverfis hann eru neðst sjávarhamrar, og þar
upp-af brattar grashillur eður tór, sem heita Efri- og
Neðri-Landstakkstór. Suður af Litla-höfða liggja
gras-lausar grjótöldur, og suður af þeim stutt eiði eður
grjótgrandi til Stórhöfða, sem er syðsti hluti
Heima-eyjar; hann er mikill ummáls, flatur ofan og mjög
grasi vaxinn, og hið fallegasta fjall. Hann er
um-girtur á þrjá vegu af hengihömrum, og hrapa þar
stundum hestar, sem sækja þangað ákaft, sökum
landgæðanna, en kúm er varnað að komast þar út,
og vottar fyrir grjótgarði um þvert eiðið, er hefir að
likindum verið varnargarður í fornöld. Frá Stórhöfða
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>