Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 280 —
fer að draga inn með eynni vestanmegin; tekur þar
fyrst við slétt sandvík og síðan hæðir og dældir, og
þá Ofanleitishraun, sem fyr er nefnt. Langt inn-með
því að vestan kemur Mýrin, og er þar fyrir fám
ár-um fundið mótak, heldur lélegt, en þó má það heita
mikils virði, þar sem eyjan að öðru leyti má heita
eldiviðarlaus. Þá tekur við hinn áður-nefndi
fjalla-hryggur á norðurrönd eyjarinnar, og er þar vestast
Dalfjall. Það er all-bratt og klettótt, með hvössum
tindi, og annað hæst fjall á eynni. Ofarlega á því
blasir móti landsuðri fögur grashlið, kafloðin og mjög
fjölgrösug, er heitir Hviid, og hyggja menn það sé
sá staður, sem máldagabrot Ofanleitis kallar »eng á
Dalfjalli«. Sunnan-á-móti, niður-í hömrum, er hilla,.
kölluð Halldórsskora. Þar sprettur nokkurt gras og
gnægð af Baldursbrá. Þar er voðalegt og tæpt ein~
stigi niður i tóna, og hafa þar farizt menn.
Vestan-til á fjallinu heitir Sauðatorfa og Illa-nef, og fleiri
eru þar örnefni. Norðvestur af Dalfjalli liggur lágur
og fagur grastangi, sem heitir Stafnsnes. Austur af
því, norðan-í-móti, heitir fyrst Upsaberg, hátt bjarg^
þá Æðarsandsskriður, þá Vatnshellar, með
stand-bergi að norðan; svo heita Eggjar austur-eftir,
þang-að til kemur Klifið eður Stóra-klif. Það er hátt fjalL
áfast við Eggjarnar, og uppá þvi rennisléttur
gras-flötur. Suður-af þvi og áfast er Litla-klif, brattur
fjallhnjúkur. Upp á það kemst ekki fé, enda er þar
lítið gras uppi. Suður af Litla-klifi, heimar og vestar,
heitir Háin; þar lá »Oddur á Hánni«, þegar Tyrkir
rændu eyjarnar, og sá þaðan allt, hvernig fram fór.
Móti landnorðri, niður af Hánni, eru háir hamrar,
stöllóttir, er heita Skiphellar; skúta þeir fram a&
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>