- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
281

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 281 —

neðan og er þar goít hæli fyrir fé. Þar festa menn
úr háum stiga kaðlastög um bergið með járnnöglum,
og þurka þar fiskiafla á sumrum og haustum, og
þornar hann þar ágæta-vel. Hátt og víðs vegar uppi
í hömrum þessum eru fiskibyrgi eyjarbúa, og er hin
mesta mannhætta að komast að sumum þeirra, og
hafa menn stundum hrapað þar og týnzt.
Sunnan-á-móti í Hánni heita Fiskhellar. Það er hátt og
fag-urt bjarg; er þar fyrst einstigi upp að ganga,
þver-gnípt, 12 til 14 álna hátt, og þar fyrir ofan taka við
margar og langar hillur, með skútum og allmörgum
fiskibyrgjum, skáhallt, hvað upp af öðru, lengst upp í
berg. Vestmannaeyingar, sem ekki hafa gleymt
rán-unum og eru fremur öðrum uggandi um sig fyrir
ófriði og árásum, hafa gott auga á þessum stað og
hyggja sér þar til hins traustasta vígis, og víst er
um það, að þar er ekki leitandi til uppgöngu meðan
nokkur vör[n] er fyrir, en lítið viðtak er þar móti
fall-byssum. Millum Háarinnar og Dalfjalls, sem áður er
nefnt, liggur móti suðri kriki nokkur eður dalverpi,
er heitir Herjólfsdalur, almennt kallaður Dalurinn.
Þar hefir fyrir löngu urðarskriða mikil hlaupið ofan
úr fjallinu, og segja menn hún hafi tekið af bæinn
Herjólfsdal, þar sem Herjólfur reisti fyrstur byggð á
Vestmannaeyjum, að vitni Landnámabókar. Hafa
ýms-ir gjört tilraunir til að grafa upp skriðuna og komast
niður á bæjarrústirnar, en gefizt allir upp við það
hingað til, þar eð hún er bæði mikil og í 11
viðureign-ar, af því hún er að mestu leyti tómt
blágrýtis-stuðlaberg, sem hrapað hefir úr kömpum, er liggja
gegnum móbergsfjallið þar upp-undan. Frá Stóra-klifi
að norðan liggur til austurs lágur grjótgrandi, Eiðið

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0293.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free