- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
282

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 282 —

kallað, eður Þrœla-eiði. Þar kom Ingólfur að þrælum
Hjörleifs hinum írsku, sem Vestmannaeyjar eru við
kenndar. Það er hér um bil 300 faðma langt og 60
faðma breitt með vanalegu háflæði, og ekki hærra en
svo, að sjór gengur yfir það í ofsalegustu
vestan-görðum. Austur af því tekur við hár og
afar-sæbratt-ur fjallhryggur á landnorðurtanga Heimaeyjar. Er þar
innstur Heimaklettur, hæsta fjall á eyjunum (900 feta),
með feikiháum hömrum bæði norðan- og
sunnan-í-móti. Uppganga í klettinn er að vestanverðu, af
Eið-inu; heita þar Efri- og Neðri-Kleifar, og komast það
ekki aðrir en þeir, sem á landi væru kallaðir göðir
klettamenn, en þótt eyjabúum þyki það vera eins og
á pallinum. Uppi á klettinum er hið ágætasta
gras-lendi; ganga þar árið um kring 80 fjár frá
Vilborgar-staðajörðum, og þar að auki hefir hver þeirra þar
af-markaða slægju eftir tiltölu. Norðan-á-móti er stór
grastó og liggur á snarbrattri móhellu; hún er
al-þakin hvannstóði og sækir þangað múgur manns á
haustum til rótatekju. Hún er svo geysibrött, að það
er sannmæli, að detti þar vettlingur af hendi manns,
hrapar hann alveg í sjó niður, enda eru þar háir og
þvergníptir hamrar niður-undan tónni. Á þessum
stað hafa margir menn hrapað og týnt aumkunarlega
lífi sínu. Hefir það verið mál manna til forna, að
jafn-margir færust í Dufþekju og Jökulsá á Sólheimasandi,
og kölluðust þær á. — Sunnan-á-móti í Heimakletti
er löng hilla, skammt fyrir neðan hamrabrúnina, sem
heitir Danska-tó. Hún er vön að vera alþakin aí
fýl-ungum, og svo er i stuttu máli að segja hver snös
og hilla í öllum hömrum, hverju nafni sem heita,
um-hverfis Heimaey. Efst á Heimakletti heitir þúfa hans

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0294.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free