Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— 284 —
gefið viðuna til. Hún er áföst Heimakletti, liggur til
suðurs og þrengir svo að leiðinni, að úr tanga
eyr-arinnar austur á við, hliðhallt út í Hrognaskerið, eru
ekki nema 17 faðmar, 3 álna djúp með fjöru, og
heitir það Steinrifið. Þar á ofan er hættulegt sandrif,
skammt eitt í útsuður frá eyrarhálsinum, svo þræða
verður með hafskip örmjóan ál millum sandrifsins og
eyraroddans, og þar fyrir innan kemur skipalega, góð
og traust, en heldur grunn, svo stórskip höggva þar
stundum niður um fjöruna. — Þegar þessari
þrauta-höfn sleppir, er lítið um lendingar á
Vestmannaeyj-um, og skal nú nefna, hvar til er ráðanda um leið
og vér skoðum ströndina umhverfis Heimaey.
Austur frá víkinni taka fyrst við suður-eftir
stór-grýttar urðir, þar til kemur næstum því móts við
Helgafell, og eru þar ýms smásker meðfram
land-steinum; þá taka við hamrar, er Flugur heita, með
hillum og tóm framan-í-móti og stórurð neðan-undir;
flúð ein athugaverð er þar i kafi, skammt frá landi,
og [má] róa milli lands og hennar, þegar gott er i sjó.
Suður-af Flugum kemur Skarfatangi, þá Lambaskorur,
þá áður-nefndir Sæfjallshamrar og Gunnarsurð,
neðan-undir Sæfjalli; þá kemur Sigmundarsteinn,
landnorðan-undir Kervíkurfjalli. Þar er selalátur hið eina að kalla
má, sem nú er orðið á eyjunum, og má þar næstum
ætíð ganga að vissum selum, er liggja þar uppi á
steininum. Fyrir sunnan Sigmundarstein kemur
Kópa-vík, — mjótt vik inn-með Litla-höfða norðanmegin;
þar hafa róðrarskip hleypt inn, einkum í
norðanveðr-um, og bjargar þar mönnum og skipi, þótt þar sé
bæði þröngt og stórgrýtt. Fyrir sunnan Kópavik heitir
Landstakksurð, og tekur nafn af háum dranga, sem
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>