- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
291

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 291 —

veiðar. Fyrir sunnan Höfnina kemur nef, kallað
Suð-urflá, og suður af henni geysi-hár hamar, með löngum
hillum. Þar liggur upp tæpur vegur og hættulegur,
sem heitir Skoran. Nu kemur Eystra-Haganef, sem
snýr móti suðri, og Vestra-Haganef, móti útsuðri.
Millum þeirra liggur hamar, ekki hár, og upp-af
honum berflár og grasi vaxnar hillur, sem heita
Haga-skorur. Þar hrapar fé oftlega á vetrum. Fyrir vestan
hið vestra Haganef kemur hár hamar vestur að
Hrúta-skorunefi. Hann er víða með hillum, einkum að
vestan, þar sem heita Hrütaskorur, og hrapar þar
einnig fé sem úr Hagaskorum. Upp-á eynni stendur
á henni miðri hár hnjúkur, uppdreginn, með skál í
kollinn; hann er kallaður Bunki, sem hnjúkurinn á
Elliðaey, og er honum náskyldur, því það eru
hvort-tveggja forn eldvörp. Allt í kring um hann eru hæðir
og dalir og sléttar flatir, allt saman grasi gróið.

Víða á eynni, einkum undir Hvannhillubringjum,
millum nefjanna, eru skútar og gjögur (»ból«), sem
féð liggur við. Drýpur þar ætíð á einni hillunni vatn
niður úr berginu, og er hún því kölluð Vatnsbringur.
Grasvegurinn er sumstaðar grafinn sundur af
lund-anum, sem þar er veiddur, og utan-í hömrunum verpa
nokkrir fýlungar, og ógrynni af svartfugli og rillu.
Þar er fjárbeit á vetrum fyrir 128 sauði, og liggur
hún undir Ofanleitis-prestakall.

Suðurey. Hún liggur spölkorn suður-af Stórhöfða,
áþekk húsi í lögun og snýr frá austri til vesturs. Hún
er afar-há að austanverðu og standberg niður í sjó.
Liggur þar stórt hellisgjögur inn í hana. Að
sunnan-verðu eru niður við sjóinn berar flár, og þar fyrir
ofan grasbrekka, svipuð húsþekju, og liggur þar veg-

19*

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0303.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free