- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / IV. Ritgerðir, Jarðfræðilegar og landfræðilegar o. fl. /
292

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— 292 —

urinn upp á eyna á útsuðurneíinu. Að vestanverðu
er hún viðlíka há og að austan, en ekki svo brött.
Heita þar Hvannskorur, og ein hilla, stór, heitir
Hvannstóð, jafnvel þótt þar sé nú orðið litil sem
engin rótatekja. Að norðan er eyjan nokkuð lægri en
að vestan, og heitir sú hliðin »á Vatni«, því um
fjöru kemur þar upp vatnsæö úr berginu. Þar er bæði
fé og fugl látinn siga ofan, því þar er að kalla
stand-berg, 30—40 faðma hátt. Brekkan að sunnan endar að
ofanverðu við háan hrygg eður mæni, sem liggur
eftir eynni endilangri, og hallar að norðan út-af
honum niður á Vatnið, og er þar nokkurt undirlendi
niður-við sjálfan hamarinn. Eyjan er að ofan öll
vaf-in grasi og útgrafin af lundanum, sem þar er veitt
mikið af. Þar er á vetrum 96 sauða beit.

Hellisey liggur góðan kipp frá Suðurey í
suður-útsuður. Hún er löguð sem þríhyrningur, og mjög há
að austan, norðan og vestan, en að sunnan er hún
öll lægri. Við útsuðurhornið er áfastur langur og
mik-ill klettur, kallaður Höfði, en norðurhornið heitir
Sámur eða Sámsnef. Bæði að austan og vestan í
berginu eru á hverjum stað tvö hellisgjögur, og
verp-ir í þeim hafsúla, og eins utan í höfðanum, en að
ofan á höfðanum og eynni verpir mikill fýlungi, og
er þar góð ungatekja af báðum þeim fuglategundum.
Hellisey var fyrrum grasi gröin og var þar 24 sauða
beit, en nú sprettur þar varla neitt, nema skarfakál.
Kringum eyna, einkum að austan og norðan, eru
smásker og flúðir.

Súlnasker, sem oftast er kallað annaðhvort
Sker-ið eða Almenningssker, liggur 3U viku sjávar i
suður-útsuður af Stórhöfða. Það er í lögun líkast kistu eð-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:41 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/4/0304.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free