- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
IV

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— IV —
I.

1. FÆÐINGARSTAÐUR OG FÆÐINGARDAGUR.

Jónas Hallgrímsson fæddist árið 1807 á Hrauni í Öxnadal
(Bakka-sókn). í kirkjubókinni, ,,Ministerial-bók fyrir
Bægisár-og Bakka-sóknii-", sem nú er varðveitt í Þjóðskjalasafninu, eru
talin neðst á bls. 47 tíu börn, er fæðzt hafi í Bakka-sókn árið
1807, og er Jónas 8. bamið í röðinni, en hvorki er getið
fæð-ingardags þeirra né skírnardags (né skírnarvotta), nema fyrsta
barnsins.*) Þetta kemur fram í fæðingarvottorði Jónasar, er
hann hefir útvegað sér frá sóknarprestinum á Bægisá, séra Páli
Árnasyni, 1832; Jónas ætlaði sér þá að fara utan iil
háskóla-náms. Það er nú varðveitt í nr. 13 í abi\ í hrs. Bmf. Munu nú
ekki þekkjast eldri gögn um fæðingardag Jónasai’ en
einkunna-bók Bessastaða-skóla, „Islands Latin-skoles paa Bessested
al-mindelige Censur-protocol", frá 1824—39, sem nú er í
Þjóð-skjalasafninu. Bls. 111—16 þar eru um Jónas, og er efst á bls.
111 skýrsla á dönsku um foreldra hans, fæðingar-dag og -stað,
og skólavist; stendur bar: „Födt den 16de October 1807". Hefir
þctta að líkindum verið skrifað haustið 1824, þegar þessi bók
var nýfengin og löggilt, ári síðar en Jónas kom í skólann, ■—
hafi ]?að ekki verið skrifað 3 árum síðar (1826), er Jónas var
settur í 2. bekk, því að þess er einnig getið í skýrslnnni.
Senni-lega hefir þetta verið skrifað upp eftir eldri skýrslu, ef cil vill
á lausu blaði að nokkru leyti, ef ekki eftir munnlegri skýrslu
Jónasar sjálfs, en sýnilega ekki að neinu leyti eftir hinni eldri
einkunnabók. En neðan-undir þessari dönsku skýrslu, á neðri
hluta sömu bls., hefir verið skrifað inn burtfararvottorð,
„testi-monium", Jónasar, er hann útskrifaðist, dags. 10. Júní 1832, og
er það á latínu, sbr. fylgiskj. 1. Þar stendur: „natus est die 16°
Novembris 1807". Vottorðið er nú í K. G. 31 a meðal annara
skjala og skrifa, er Konráð Gislason tók til sín að Jónasi
látn-um, og er að öllu leyti orðað eins og það er í einkunnabókinni.
I eftirmælum þeim, er Konráð ritaði í Fjölni, IX., 1—6, vitnar
hann í þetta vottorð (eitt) um það, hve nær Jónas hafi verið

*) Sama vanræksla kemur oftar fyrir í bókinni, en þó ekki
næstu árin, undan og eftir. Sóknarprestur var séra Jón Þorláksson
á Bægisá, og hefir hann varSveitt bókina og skrifað nöfn
barn-anna í hana, öll í einu, at5 því er virðist, líklega eftir skýrslu
aö-stotSarprests slns, sem mun aöallega hafa þjónaS Bakka-sókn, þvi
aö hann átti heima í henni, en hann var einmitt faöir Jónasar.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0014.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free