Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
fæddur, og vefengir það ekki. En nokkrum árum áður, 1843,
var prentað í Kaupmannahöfn fyrsta bindið af rithöfundatali
Thomasar Hansens Erslews, Almindeligt Forfatter-Lexicon o. g.
frv.; eru þar á bls. 557 nokkrar línur um Jónas, og skýrt frá
ritum hans. Jónas var þá í Kaupmannahöfn, og Jón Sigurðsson
mun hafa ritað þetta um hann og rit hans,*) sennilega í samráði
við hann, hafi hann ekki ritað það sjálfur fyrir Erslew; en þar
stendur: ,,f. d. 16de Novbr. 1807". — Mörgum árum síðar,
1858, kom út 1. viðaukabindi við betta rithöfundatal. Þar er
um Jónas, á bls. 647—48, mun meira en hið fyrra og
áreiðan-lega ritað af Jóni Sigurðssyni.*) Þá hefir hann verið búinn að
sjá það, sem stóð um Jónas og fæðingarstað hans í
einkunna-bók Bessastaðaskóla og jafnframt það, sem stóð í
eftirmælun-um í Fjölni; en nú var Jónas ekki lengur til frásagnar sjálfur.
Jón hefir fest trúnað á það, sem stóð í einkunnabókinni og
skrifar tvi: „f. paa Hraun i Øxnadal, . . . 16. Octbr. 1807",
og vitnar neðanmáls í einkunnabókina, en getur bess
jafnframt, hvað standi í burtfararvottorðinu. — Árið 1883 gaf
Bókmenntafélagið út ljóðmæli Jónasar og ritaði Hannes
Hafstein þar um hann framan-við. Hann getur um báðar
frásagn-irnar og vitnar í þær heimildir og þau rit, sem hér hefir verið
getið, og segir enn fremur, að Jónas virðist sjálfur hafa talið
16. Nóvember fæðingardag sinn, en ekki færir hann bó nein
sérstök rök fyrir því, að hann hafi gjört bað. — Fám árum
síðar, 29. Marz 1890, kom út smágrein í blaðinu „Lýður" á
Akureyri með fyrirsögninni „Hvar og hvenær er Jónas
Hall-grímsson fæddur". Þar stendur m. a.: „Eftir upplýsingu herra
Hallgríms Tómassonar, systursonar skáldsins, — — — var
Jónas fæddur 16. Nóvember 1807, — ekki Októb.". Þessi
upp-lýsing byggist sennilega á frásögn ömmu Hallgríms, móður
Jónasar; Hallgrimur var kominn yfir fertugt, þegar hún dó, og
hún var allt til æviloka hjá móður hans. Þetta kann að sönnu
að vera byggt á eftirmælunum í Fjölni, en það byggist eflaust
hvorki á einkunnabókinni né burtfararvottorðinu beinlínis, og
er takandi nokkurt mark á þessu sem sönnunargagni, þótt
ekki sé það fyllilega óyggjandi.**) — Páll sagnfræðingur
Mel-sted var sambýlismaður Jónasar á Garði 1834—36. I almanak
sitt fyrir 1836, sem nú er í handrs. Landsbs. nr. 2003 í 8 bl. br.,
*) Ævis. J. Sig., I., 344—45.
**) ÞaS, sem haft er eftir Hallgrími í sömu smáErein um
fæS-ingarstað Jónasar, að hann hafi verits fæddur at5 SteinsstötSum, en
ekki aS Hrauni, er ekki rétt; kirkjubókin sýnir það alveg
óyggj-andi.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>