- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
VI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— VI —

hefir Páll strikað undir 16. Nóvember og skrifað út-undan í
litla eyðu á blaðsíðunni: ,,16da Afmælisdagur Jónasar
Hall-grímssonar". Er sennilegast, að Jónas hafi sjálfur sagt honum,
að hann væri fæddur þann dag, en að vísu kann Páll að hafa
séð það í burtfararvottorðinu. Trúlegast er samt, að sú
dag-setning, 16. Nóvember, sé rétt, en að dagsetningin „den 16de
October" í einkunnabókinni muni stafa af því, að bau orð og
öll sú skýrsla sé skrifuð í Október, eða jafnframt af bví, að í
næstu línum er það mánaðarnafn skrifað aftur og aftur, begar
skýrt er frá, að Jónas hafi gengið inn í skólann 1. Okt. 1823,
verið settur í 1. bekk í Okt. s. á. og í 2. bekk í Okt. 1826. —
16. Nóvember 1807 var mánudagur.

2. ÆTTERNI.

Það hefir verið venja hér á landi, þegar rætt hefir verið
eða ritað um merka menn, að segja nokkuð frá ætt þeiri*a, ekki
sízt þeirra, er voru af góðu bergi brotnir eða áttu til
þjóð-kunnra merkismanna að telja, svo sem Jónas Hallgrímsson.
Enda er þekkingin um ætt manna eitt af nauðsynlegum
skil-yrðum til að geta dæmt rétt um þá. „Fjórðungi bregður til
fósturs", segir gamalt spakmæli, byggt á reynslu og djúpsærri
umhugsun. Hæfileikar manna, skapgerð og sálarfar, jafnvel allt
ásigkomulag, bæði andlegt og líkamlegt, er mönnum að
lang-mestu leyti meðskapað og að miklu leyti arfgengt, en er ekki
aðallega orðið svo sem það er fyrir „fóstrið", uppeldi og
um-hverfi út-af fyrir sig, enda fer þetta síðast-nefnda og áhrif
þess að miklu leyti eftir einstaklingnum, eins og hann er ,,af
guði gerður", eftir upplagi hans. „Þótt náttúran sé laniin með
lurk, leitar hún út um síðir". Jónasi hefir sjálfum verið þetta
ljóst, enda er það viðurkenndur sannleikur, bæði gamall og
nýr. „Allt hefi ég af öfum mínum", sagði hann, að vísu í
hálf-gerðu gremjugamni og svo sem með annara orðum líklega
frekar en af því, að hann hefði komizt að beirri niðurstöðu af
djúpx-i sjálfsprófun og nákvæmlegri þekkingu á forfeðrum
cín-um. En eigi þekking á mönnum að styðjast við þekking á, hvað
þeir hafi fengið að erfðum, nægir ekki að vita um foreldi’ana
eina né hvað menn hafa „haft af öfum sínum", bókstaflega;
reynslan sýnir, að hæfileikai’ o. fl. geta komið fram í ættum
með nokkurra ættliða millibili. En erfitt er að rekja til hlítar,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0016.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free