- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
VII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— VII —

hvaðan hvað eina er fengið, og hversu aðstæður og áhrif hafa
valdið um ásigkomulag hvers eins.

Það, sem hér verður sagt um ætt og forfeður Jónasar
Hall-grímssonar, er einkum byggt á prestaæfum Sighvats
Gríms-sonar Borgfirðings, sem nú eru í Landsbókasafninu, en
fram-ættin þó rakin eftir öðrum heimildum, einkum
Sýslumannaæf-um Boga Benediktssonar og ættaskrám beim, er fylgja
íslenzk-um ártíðaskrám, er Jón Þorkelsson gaf út, og framætt
Eiða-manna eða samband þeirra við Svínfellinga er eftir ættfærslu
Jóns Espolins og að sumu leyti Péturs ættfræðings
Zophonías-sonar, sem einnig er kominn af þessari ætt; Halldór föðurfaðir
hans og Jónas voru systkinasynir. Það myndi þykja helzti langt
mál að rekja hér föðurætt Jónasar svo langt í alla liði sem
unnt verður, og segja frá öllum þeim forfeðrum hans og
for-mæðrum. Verður tekinn sá kostur að segja nokkuð frá hinum
næstu og síðustu og gefa síðan í skrárforaii, því að það verður
gleggst, yfirlit yfir karllegginn fram til miðrar 7. aldar eða um
það Dil, svo sem rakið hefir verið í fornum frásögnum.

Hallgrímur, faðir Jónasar, ví.. Þorsteinsson, prests í
S’tærra-Árskógi, og Jórunnar, dóttur Lárusar klausturhaldara
Schevings. Þegar Jónas fæddist, var faðir hans aðstoðarprestur
séra Jóns Þorlákssonar á Ytri-Bægisá. Hann var fæddur í
íor-eldra húsum 16. Marz 1776 í Garði í Aðal-Reykjadal, en hann
var barn að aldri, er móðir hans dó, 1783, og hann varð að
fara frá föður sínum. Skömmu síðar giftist föðursystir hans,
Ólöf, séra Hallgrími Einarssyni Thorlaciusi, sem þá þjónaði
Grenjaðarstað eftir bróðurson sinn, séra Einar Bjarnason,
frá-fallinn, og tóku þau hjónin drenginn að sér. Þau fluttu að
Miklagarði 1786, þar sem séra Hallgrímur Thorlacius var síðan
prestur um 60 ár, allt til æviloka, 1846. Synir þeirra voru þeir
Hallgrímur prófastur Thorlacius á Hrafnagili og séra Einar
Thorlacius í Saurbæ í Eyjafirði. í fyrstu var Hallgrímur
Þor-steinsson að eins skamma hríð hjá föðursystur sinni og nafna,
og fór aftur til föður síns, er hann var orðinn prestur í
Stærra-Árskógi, en árið 1791 dó séra Þorsteinn, og fór Hallgrímur þá
aftur til nafna síns í Miklagarði, sem kom honum í Hólaskóla
þrem árum síðar. Árið 1799 var hann útskrifaður þaðan. Hann
var þá trúlofaður Rannveigu, dóttur Jónasar bónda
Tómasson-ar í Hvassafelli, og var þar um sumarið. Þau giftust um
haust-ið, 10. Okt., og bjuggu þar siðan nokkur ár, en 6. Marz 1803
var Hallgrímur vígður aðstoðarprestur séra Jóns og flutti þá
búferlum að Hrauni um vorið. Þar eignuðust bau hjónin
Jón-as, en höfðu áður eignazt 2 börn, Þorstein og Rannveigu. Vor-

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0017.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free