- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XI

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XI —

hann í Hólaskóla 1739, og útskrifaðist hann þaðan 1744 og tók
tveim árum síðar embættispróf í guðfræði við háskólann í
Kaupmannahöfn. 1748 var hann vígður aðstoðarprestur fóstra
síns, en var veitt Bægisár-prestakall 1751; varð svo prófastur í
Vaðlaþingi 1753. Árið 1768 var honum veittur Laufás um
vetur-inn, en næsta vor Grenjaðarstaður; fór hann bangað vorið eftir
og var þar til dauðadags, 12. Apríl 1779. Hann þótti mikill
merk-ismaður, vel að sér, iðjumaður mikill, staðfastur og gætinn,
segir séra Jón Konráðsson á Mælifelli. Hann segir e. fr., að
hann hafi verið lipurmenni í prestsverkum, og raddmaður góður.
En ráðríkur og röggsamur prófastur virðist hann hafa verið.
Hann þótti allgott skáld, orti marga sálma og tækifæriskvæði;
er enn til ýmislegt af kveðskap hans, m. a. „Huggunarklasi", 7
sálmar, ljóðmæli út af helgidagaguðspjöllunum, tíðavísur o. fl.,
en fátt hefir verið prentað eftir hann. Kona hans og móðir séra
Þorsteins í Stærra-Arskógi var Olöf, dóttir Jóns prests
Halldórs-sonar á Völlum, Þorbergssonar, sýslumanns á Seylu,
Hrólfsson-ar sterka á Álfgeirsvöllum, Bjarnasonar, lögréttumanns,
Skúla-sonar, sýslumanns í Húnaþingi, Guðmundssonar, prests
Skúla-sonar, Loftssonar ríka.

Séra Eldjárn Jonsson, faðir Hallgríms prófasts, var
fædd-ur á Grund í Höfðahverfi 6. Mai 1694; hann útskrifaðist úr
Hóla-skóla 1716, varð síðan biskupsskrifari og conrector á
Hól-um, og vígðist þar 1721 sem prestur að Möðruvallaklaustri,
kvæntist næsta ár Þórvöru, dóttur séra Egils Sigfússonar í
Glaumbæ, en andaðist þegar á unga aldri, 1725, svo sem áður
var sagt. Hann var gáfumaður og skáld eins og þeir feðgar
fleiri; eru enn til kvæði eftir hann (erfiljóð og bænavers),
óprentuð. — Jón faðir hans var bóndi á Grund í Höfðahverfi.
Hann var sonur séra Þórarins Jónssonar á Hrafnagili og bróðir
Jóns prófasts í Hjarðarholti, föður Þórarins prófasts s. st.,
föður Árna biskups á Hóluni. Kona Jóns bónda á Grund var
Snjólaug, dóttir Þorsteins Jónssonar á Frostastöðum og
Guð-ríðar Pétursdóttur, systur Hallgríms prests í Saurbæ á
Hval-fjarðarströnd, hins þjóðkunna skálds; var hann því
langömmu-bróðir langafa Jónasar. Hefir Hallgrímur prófastur sennilega
verið látinn heita eftir langömmubróður sínum, því að séra
Eldjárn hefir kunnað vel að meta ömmubróður sinn; en
Snjó-laug Hallgrímsdóttir hefir heitið eftir langömmu sinni,
systur-dóttur séra Hallgríms Péturssonar.

Séra Þórarinn, faðir Jóns á Grund, var sonur Jóns
lögréttumanns Einarssonar í Hafrafellstungu. Hann virðist hafa
orðið prestur á Hrafnagili 1662. Hann var merkilegur maður,

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0023.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free