- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XII —

talinn meðal helztu presta nyrðra um sína daga, og þótti vel
fallinn til biskupsdóms eftir Gísla biskup Þorláksson; en ekki
varð úr þvi, þar eð Jón sýslumaður Vigfusson var skipaður og
vigður til þess embættis 1674, 10 árum áður en Gísli biskup dó,
svo sem kunnugt er. Séra Þórarinn ,,var skáld sæmilegt". Hann
var tvíkvæntur; síðari konan var Halldóra, dóttir séra
Þor-steins Ásmundssonar i Vestuihópshólum, og mun Jón á Grund
hafa verið sonur hennar. -— Jón lögréttumaður í
Hafrafells-tungu var merkisbóndi. Kona hans, móðir séra Þórarins, var
Guðrún, dóttir Jóns Jónssonar glókolls á Draflastöðum,
Orms-sonar s. st., Jónssonar kolls s. st., Oddssonar lögréttumanns á
Hvoli í Saurbæ, Péturssonar. — Einar, faðir Jóns í
Hafrafells-tungu, var einnig bóndi þar; d. 1624. Hann átti Kristrúnu,
dótt-ur séra Jóns á Skinnastöðum, Loftssonar, prests í Víðidalstungu,
Péturssonar, Loftssonar, Ormssonar Loftssonar ríka. Faðir
Ein-ars í Hafrafellstungu var Nikulás klausturhaldari á
Munka-Þverá, d. 1591, og var kona hans, móðir Einars, Sigríður,
dótt-ir Einars lögsagnara á Espihóli, Brynjólfssonar, Magnússonar,
Benediktssonar, Brynjólfssonar. Nikulás var sonur Þorsteins
sýslumanns i Þingeyjarþingi, d. 1553, Finnbogasonar lögmanns,
er var sonur séra Jóns Maríu-skálds á Grenjaðarstað, officialis
i Hóla-biskupsdæmi, d. 1471, og Þórunnar Finnbogadóttur gamla
i Ási, d. 1441, Jónssonar langs. En um framætt séra Jóns
Maríu-skálds í beinan karllegg vísast hér til meðfylgjandi ættarskrár.
Kona Þorsteins sýslumanns Finnbogasonar var Cecilia, dóttir
Torfa sýslumanns í Klofa, Jónssonar sýslumanns, Ólafssonar,
Loftssonar ríka. En móðir Þorsteins sýslumanns og kona
Finn-boga var Málfríður, dóttir Torfa hirðstjóra Arasonar.

Föðurætt Jónasar er með merkustu ættum á landinu bæði
fyr og síðar. Næstu ættliðirnir í beinan karllegg eru gáfaðir
menn í andlegri stétt, allir skáld og eiga ætt sína að rekja í
beinan karllegg til eins hinna merkustu skálda á miðöldunum,
en í milli, á 16. öld og 17., eru í karlleggnum valdamenn og
höfðingjar í bændastétt, stórauðugir, svo sem þeir áttu einnig
kyn til, bæði í beinan karllegg og aðrar ættir. Virðist það
eðli-legt og ekki óvænt, að af slíkum stofni renni slikur kvistur sem
Jónas Hallgrímsson. En einkennilegt er það, hversu skammlifir
þeir verða flestir, Jónas og næstu ættliðirnir.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0024.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free