- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
XIV

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

— XIV —

valdur Thoroddsen hefir lýst þannig landslaginu hér í ferðabók
sinni, IV., 37—39: „Við riðum Oxnadal vestan ár og
staðnæmd-umst ekki fyr en hjá Hrauni; þar kemur girðing af háum
hól-um þvert yfir dalinn, og hefir áin skorið sér djúpan farveg
gegnum þá; stórkostlegast er hólahrúgald þetta vestan megin,
hjá bænum Hrauni, og nær það þar hátt upp í fjallshlíð. Þar
fyrir ofan eru tvær mjög háar f jallseggjar, og gengur dalverpi
inn á milli þeirra til suðurs, og þaðan hefir framhlaupið komið;
eystri eggin endar fyrir innan urðarspýjuna, en hin heldur
lengi’a áfram til norðurs, og er hún örþunn, en mjög há og
hrikaleg; af verkum vatns og lofts hefir egg þessi ummyndazt
og orðið eins og ógurlegur tanngarður, og er hver strýta eða
tönn örþunn og hvöss, en þó mörg hundruð fet á hæð;*) líkist
fjallgarður þessi Dröngum á Hornströndum. Fyrir neðan
drang-ana er geysihár klettaveggur, og upp undir hann ná
urðar-dyngjur þær, sem girða dalinn. í urðarhólum þessum er
stór-grýtisbjörgum alla vega tildrað saman, og eru þar eintómar
ö dur, dældir, holur og sprungur. Við bæinn Hraun C325 fet**)
yfir sjó, skildum við eftir hestana og klöngruðumst upp
urðirn-ar, öldu af öldu, og urðu urðarkambarnir þvi hrikalegri, sem
ofar dró, og djúpar skorur og dældir á milli; hélzt þetta alla
leið upp að vegghömrunum fyrir neðan tindana; var fremur
illt yfirferðar sakir brettu og urða. •— — •— Frá hömrunum
fórum við hrygg af hrygg suður eftir, unz við komum að
Hraunsvatni, sem liggur i djúpri hvilft sunnan-við urðirnar;
upp af þvi er dalverpi***) milli eggjanna, og er þar mjög
vetr-arlegt, hver fönnin upp af annari, og rennur undan þeim i
vatn-ið; vatnið liggur 1320 fet****) yfir sjó og er 32 faðmar á dýpt;
úr þvi rennur syðst*****) dálitill lækur gegnum skoru, og eflaust
siast þaðan lika vatn gegnum urðirnar. Það er ekki gott að
segja með vissu, hvernig urðir þessar hafa myndazt, þó finnst
mér vera liklegast, að í dalhvilftinni milli eggjanna og undir
hinum háu vegghömrum og dröngum hafi á ísöld og um langan
tima ^ar á eftir legið hjarnjökull, siðan hafa urðir og ekriður

*) Þar er Hraundrangi mestur, upp-af bænum Hrauni,
norðar-lega í Háafjalli, en þaS er útnorðan-viö hvilftina, sem Hraunsvatn
er I. Hraundrangi er álika hár frá sjávarmáli og t. d. Botnsúlur^
sem margir á Suöurlandi kannast við (1075 m.). H ö f.

**) 230 m. á uppdr. landmælingastofnunarinnar 1933. H ö f.

***) Vatnsdalur. H ö f.

»***) 492 m. á uppdr. landmælingastofnunarinnar 1933. H ö f.

****•) Mun eiga aS vera nyrzt, og átt viö Hraunsá, sem rennur
úr landnorSur-horni vatnsins og fellur I Öxnadalsá nokkru fyrir
innan Hraun. H ö f.

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0026.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free