Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— XV —
úr hömrunum fallið á jökulinn og runnið eftir honum niður í
dal, og svo varð allt þetta hrúgald eftir, þegar jökullinn
bráðn-aði". Það eru þessar urðir, sem heita hraun og bærinn o. fl.
dregur nafn af; eldhi-aun er hér ekki neins staðar. —
Innan-við hólana er dalbotninn allvel flatur á löngum kafla, en ekki
breiður; hefir sennilega verið þar stöðuvatn áður en áin hafði
rofið sér nægilega djúpan farveg gegn um hólana.
Það er ekki ósennilegt, að þessir hólar og þetta
einkenni-lega landslag á æskustöðvum Jónasar hafi átt mikinn þátt í að
vekja eftirtekt hans á náttúrunni og einkum jarðfræðinni. Það
má sjá af erindi hans, „Þar sem háir hólar" o. s. frv., I. b., bls.
191, að hann hefir veitt þessum hólum í Öxnadal athygli og
orð-ið minnisstætt landslagið þar, hamrahillan, er hló við sólunni
meðan grundin niðri í dalnum bar enn nóttina í faðmi sér.
„Dalvísan" hans, I. b., bls. 130—31, kann að þykja geta átt við
um marga dali hér á landi, en ekki er ósennilegt, að myndin af
þeim dal, sem var fremur öllum öðrum dölum dalurinn hans, hafi
vakað fyrir honum; víða má hér finna allt það, sem hann kvað
um í 1. og 3. erindi, og ..gljúfrabúinn" (2. er.) í fjallinu skammt
upp frá Steinsstöðum segir til sín*; og víst er um það, að
næst-síðasta erindið, um ,,hnjúkafjöllin himinblá",
hamragarð-ana og hvítu tindana, á hvergi betur við en hér, um fjöllin
him-inháu beggja vegna Öxnadals; þar eru einkennilega mörg fjöll
og tindar sem heita hnjúkar, kenndir við eitt eða annað, og
margir smájöklar og „hvítir tindar" úti í frá og uppi yfir. Þessi
fagri lofsöngur um dalinn og fyrirbænin fyrir honum eru
hljóm-ar frá hjartastrengjum skáldsins, svo hreinir og skærir, að þar
virðist átthagaást á æskustöðvum hafa snert hörpuna.
Bærinn Hraun, fæðingarstaður Jónasar, stendur
norðan-við hólana, sem sagt var frá, vestan megin í dalnum, en
Steins-staðir, æskuheimiiið, hins vegar, svo sem áður var sagt, og
tæp-um 4 km. utar.
Úti fyrir Hörgárdalnum og austan-við strandirnar skerst
inn Eyjafjörðurinn, langur og mjór, en hins vegar við hann
blasir við Vaðlaheiði og Svalbarðsströndin neðan-undir henni,
nokkru utar Höfðahverfi og enn utar Látraströnd, undir hám
fjöllum. Útsýnið yfir fjörðinn og byggðirnar og fjöllin er
að-dáanlega fagurt. Af bæjum austan fjarðarins er Laufás helztur
og kemur við sögu Jónasar og forfeðra hans.
*) Sbr. smágrein eftir systursonarson Jónasar, séra Tómas
Hallgrlmsson, 1 Stefni, III., 87—8. — Eftir tilvisun drs. Halldórs
Hermannssonar.
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>