- Project Runeberg -  RIT eftir Jónas Hallgrímsson / V. Smágreinar Dýrafræðislegs efnis, Ævisa A o. fl. /
LII

Author: Jónas Hallgrímsson
Table of Contents / Innehåll | << Previous | Next >>
  Project Runeberg | Catalog | Recent Changes | Donate | Comments? |   

Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...

scanned image

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Below is the raw OCR text from the above scanned image. Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan. Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!

This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.

ekki ætlir að bera gæfu til að verða með þínum sannarlega stöku
gáfum veslings gömlu konunni, henni móður okkar, til gagns og
sóma, í það minnsta ekki án þess að gera þig sjálfan
ólukku-legan eða svikara" o. s. frv. Tómasi mun ekki hafa verið nógu
vel kunnugt um, hversu nú var komið ástamálum Jónasar; það
er auðséð. Hann mun hafa heyrt um það, sem komið hafði fyrir
2 árum áður, og um bréfaviðskiptin, því að varla hafa menn
haft nokkra ástæðu til að skrifa honum um aðra ásthrifning
Jónasar vorið 1830 eða þar áður. — Að síðustu minnir hann
Jónas enn á að koma utan; segir m. a.: „Hann mágur þinn er
þér sannarlega mikið skuldugur fyrir svo snotra konu, sem hún
systir þín er, og þú verður því að knýja á honum, og heldur
ekki veigra þér við að koma hingað, þó þú ekki hafir heila
dala-kúta". — I bréfinu, sem hann skrifaði Jónasi 4. Okt., skrifar
hann enn langt mál til að fá hann til að sigla, og telur nú um
fyrir honum bæði með gamni og alvöru: „Já, þig vantar, bezti
Jónas! — Þú vilt ekki sitja hér og drekka kirsiberjavin og
biskup með okkur Geir, Kristjáni og Lárusi í einhverju fallega
húsinu. Þykir þér þá betra, lagsmaður, að slóra þarna í
Reykjavik en seðja sálu þína hérna við vizkunnar uppsprettu? — — —
Víst þykir þér það ekki, og ég verð að fyrirgefa þér í þetta
sinn, því ég sé, að þú hefir kennt í brjósti um Ulstrup í hans
bágindum og heldur viljað gera þér skaða en vera honum ekki
til aðstoðar. — — — Ætli ég burfi þá aldrei að vænta þín?
Ætli þú látir þér þá nægja með að skarta fyrir stúlkunum í
Reykjavik? Hvað kemur út af því að stássa í Reykjavik,
kunn-ingi. Það eru ekki fötin, sem gera okkur stóra eða álitna, en
þau geta gjarnan gert okkur litla og hlægilega i skynsamra
aug-um". Og svo skrifar hann langt mál um þetta og hversu Jónas
gæti búið sig með minni tilkostnaði, og hversu námsmenn og
miklir menn í Höfn sé einfalt klæddir. „Sjálfur kongurinn
gengur úti í stöguðum frakka, bláum", o s. frv. — „Það eru svo fáir
af löndum, sem hafa efni og vilja til að gera veslings
hólman-um okkar dálítið gagn, — en þú hefir hvorttveggja; — því með
„efnum" meina ég ekki spesiur".

En nú var um seinan að hugsa til siglingar þetta árið.
Jón-as vantaði þau efnin, sem Tómas átti ekki við; viljann mun
hann ekki hafa vantað.

Þegar leið á veturinn 1830—31 virðist hafa bráð nokkuð
af Jónasi. Hann hafði gengið í Klúbbfélag Reykjavikur 11. Okt.
og reyndi nú að færa sér í nyt þær skemmtanir, sem hinn litli
höfuðstaður hafði að bjóða, en þær voru helzt dansleikir og
spilamennska hjá fáeinum fjölskyldum. Einkum mun honum þá

<< prev. page << föreg. sida <<     >> nästa sida >> next page >>


Project Runeberg, Sun Dec 10 07:24:53 2023 (aronsson) (download) << Previous Next >>
https://runeberg.org/hjrit/5/0064.html

Valid HTML 4.0! All our files are DRM-free