Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— LIV —
Tómasi þótti skömm til koma þessarar fyrirætlanar Jónasar og
reynir með mörgum rökum að fá hann til að hætta við hana og
taka heldur fyrir reglulegt laganám. „Mér þykir verða heldur
lítið úr þér, góði Jónas, ef ég lifi þá tíð, að ég þurfi að kalla
þig „examinatus juris Hallgrimsen", því aðra stöðu liafði ég
þér ætlað, sem þér væri náttúrlegri og hvar í þú gætir gert
hólmanum okkar stærri heiður. Eg ætlaði þér ekkert minna en
að setjast á stól [Finns] Magnussens, sem enginn er betur
vax-inn en þú með réttum undirbúningi". Ræðir hann svo
allýtar-lega um þetta í bréfinu til þess að sannfæra Jónas um, að þetta
sé ekki sagt út í bláinn. En að síðustu víkur hann á ný að
fyrir-ætlun Jónasar: „Sértu einlægur í að studera dönsk lög, þá vil
ég ráða þér til að trúa nú guði einu sinni fyrir þér og koma með
póstskipi; þá er þér engin vorkunn að verða fær um að taka
examen eftir eitt ár–-frá því þú kemur, vorið 1833; ann-
ars kemur þú til að uppihalda þér hérna nauðugur viljugur til
vors 1834", o. s. frv. — En Jónas gåt ekki farið utan með
póst-skipinu; var kyr í Reykjavik við sitt skrifstofustarf, enda var
Ulstrup ekki væntanlegur aftur fyr en næsta vor.
Wilhelmine Krieger, systir stiftamtmanns, dvaldi i
Reykjavik hjá bróður sínum þennan vetur. Jónas var þeim systkinum
kunnugur og orti til hennar fallegt afmæliskvæði 21. Des.,
sól-stöðudaginn (I. b., bls. 246—47, með aths.).
Til er sendibréf, sem Jónas skrifaði Magnúsi Eiríkssyni 14.
Marz 1832 (II. b., bls. 10—11), og má sjá nokkuð af því,
hversu þessi vetur hefir liðið fyrir honum og hverja hann
um-gekkst. Hann vitnar jafnframt i bréf til Jóhanns Halldórssonar
til Magnúsar. Mun hann helzt eiga við bréf, sem Jóhann
skrif-aði 25. Febrúar. Getur hann nokkuð Jónasar þar og segir, að
hann muni vera næstum því á hverju kvöldi í Landakoti. I
sam-bandi við það skrifar Jóhann um Christiane og segir, að hún
ætli til Vestmannaeyja á komandi vori, sem bústýra til
Ed-vards Thomsens þar. En ýmislegt fleira, sem hann skrifar um
hana og frænda hennar einn, Jónas o. fl., skal ekki rakið hér. —
Síðar, 12. Ag. s. á., skrifaði Jóhann Magnúsi aftur um hana og
segir þar, að Jónas hafi beðið hennar, en hún hafi þá verið
trú-lofuð (leynilega) Edvard Thomsen.*) Þar á móti segir í beirri
*) Hann varS verzlunarstjóri í Vestmannaeyjum áriö A’Sur.
Þau Christiane og hann giftust um haustið, 29. Okt. 1832. Þau áttu
heima I Ofanleitis-sókn, en séra Páll Jónsson, prestur
Ivirkjubæjar-sóknar, gaf þau saman í heimahúsum, án lýsingar og leyfis, svo afi
úr því varö mikiö vastur og" skriftir. Árið eftir vax-ð Thomsen
verzl-unarstjóri í Reykjavik, en 1834 sigldi hann til Danmarkar og fór
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>