Full resolution (JPEG) - On this page / på denna sida - Sidor ...
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>
Below is the raw OCR text
from the above scanned image.
Do you see an error? Proofread the page now!
Här nedan syns maskintolkade texten från faksimilbilden ovan.
Ser du något fel? Korrekturläs sidan nu!
This page has never been proofread. / Denna sida har aldrig korrekturlästs.
— LXXIII —
lífsins gleði höfðu leitt hug hans nokkuð frá daglegum söknuði,
en sárið var ógróið og ólæknandi. Erindin um Skapta eru kveðin
af aðdáun og innilegum söknuði. Hann finnur enga huggun; að
eins kemur fram vitundin um það, sem ekki verður neitt viS
ráðið. — Hann birti kvæðið í 3. árg. Fjölnis næsta ár.
Páll Melsted, sambýlismaður hans, fór heim um vorið, og
vax’ heima um sumarið (Endurminn., bls. 60).
Þegar komið var langt fram á suraar og ekkert svar komið
við umsókn hans 5. Nóv. haustið áður, um styrk úr sjóðnum til
almennra þarfa, leitaði hann til sjóðstjórnarinnar á ný, 6. Júlí
(II. b., bls. 14), og minnti hana á umsóknina. Hann sendi
vott-orð frá náttúrufræðiskennurum sínum með, þeim Joh.
Rein-hardt og Georg Forchhammer, að hann hefði hlýtt á fyrirlestra
þeirra um veturinn, en hinn síðar-nefndi getur þó um, að Jónas
hafi orðið að hætta því (um stund) vegna veikinda. Af
bréfs-helmingnum frá 17. Des. um veturinn, viðv.
stúdentaliðsflokkn-um (sbr. bls. LXI) virðist einnig mega ráða, að Jónas hafi ekki
verið alveg heill heilsu um þær mundir, en ekki sýnist bó hafa
verið um neinn hættulegan eða langvarandi sjúkdóm að ræða
þennan vetur.
Sjóðstjórnin sinnti nú umsókn Jónasar og mælti með
styrkveit-ingu 30. s. m. Veitti konungur styrkinn 6. n. m., 150 dali silfurs
á ári í 3 ár, frá byrjun bess árs að telja; tilkynnti sjóðstjórnin
honum það 26. s. m., og að honum væri þegar ávísaður helmingur
styrksins fyrir yfirstandandi ár. Hafa þetta verið gleðileg
tíð-indi fyrir Jónas og vini hans. — Tilkynningin, undirrituð af
Joh. S. v. Mösting, sem var góður vísindavinur, er í nr. 13 í abr. í
hrs. Bmf.
Frá þessu sumri, 26.—29. Júlí, er „Salthólmsferð" (I. b., bls.
281—290, m. aths.). Um haustið var lokið vist Jónasar á Garði
og er óvíst, hvar hann átti heima í Höfn um veturinn næsta.
Ein af þeim fcillögum, sem Skapti Stefánsson hafði komið
fram með á fundi Hafnardeildar Bókmenntafélagsins 30. Marz
og samþykkt hafði verið á fundinum 19. Apríl, var sú, „ að ekki
séu prentuð í Skírni skjöl eða kveðlingar, án þess nefnd manna
sé tekin til að gera um, hvort hæfilegt sé". í byrjun næsta árs,
4. Jan., var næsti fundur haldinn, og voru þeir þá valdir í þessa
nefnd, Jónas, Jón Sigurðsson og Konráð. Voru birt 4 eftirmæli í
Skírni um vorið (1837), 2 eftir Bjarna Thorarensen, 1 eftir
Finn Magnússon og 1 um Sæmund Ögmundsson, föður séra
Tóm-asar, eftir Ögmund Sigurðsson (Sivertsen). Nefndin var
endur-kosin á næstu árum (31. Marz 1838, 22. Apríl 1839 og 25. Jan.
1840). — Á vorfundinum 1837, 27. Apríl, var lesið upp álit nefnd-
<< prev. page << föreg. sida << >> nästa sida >> next page >>